Tölvuárásir á Norður-Kóreu árið 2014 – Kjarnorkuógnin raunveruleg

Barack Obama Bandaríkja­forseti fyrir­skipaði tölvu­árásir á Norður-Kóreu til að vinna gegn kjarnorkuógn sem kemur frá landinu. Þjóðar­leiðtoginn Kim Jong Un er sagður óútreikn­an­legur og hættu­legur.

Kim Jong-un ásamt herforingjum.
Kim Jong-un ásamt her­for­ingjum. Mynd: EPA

Barack Obama, Bandaríkja­forseti, lét framkvæma tölvu­árásir á Norður-Kóreu árið 2014 til að vinna gegn kjarnorkuógn sem frá landinu kemur, undir stjórn hins óútreiknanlega Kim Jong Un. Árásirnar heppnuðust vel í fyrstu, og mistókust tilraunir landsins með lang­drægar flaugar í nokkur skipti. Eftir það höfðu árásirnar takmörkuð áhrif. 

Frá þessu er greint í ítarlegri umfjöllun í New York Times í dag.

Obama er sagður hafa greint Trump frá því að ógnunin sem kæmi frá Norður-Kóreu væri sú alvarlegasta sem Trump þyrfti að glíma við.

Á síðusta rúmlega hálfa árinu hefur Norður-Kóreu­mönnum í þrígang tekist að skjóta á loft meðal­drægum eldflaugum. Þá er talið að Norður-Kóreumenn hafi sprengt kjarnorku­sprengju í tvígang á síðasta ári. Síðasta eldflugar­skotið fór fram á sama tíma og Abe forsætis­ráðherra Japans og Donald Trump funduðu í Hvíta húsinu.

Donald Trump hefur sagt að hann vilji auka fjárútlát til hersins um 10 prósent, eða sem nemur 54 milljörðum Bandaríkja­dala á ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár