Leit er hafin að Sigurði

Lögreglan lýsir eftir Sigurði Kort Hafsteins­syni sem hefur ekki sést frá því á fimmtudags­morgun.

Þyrlan við leit
Þyrlan við leit Óskað er eftir upp­lýs­ingum frá almenn­ingi. Mynd: Jón Trausti Reynisson

Þyrla Landhelgis­gæslunnar hefur seinni partinn í dag sveimað yfir strand­lengjunni á höfuð­borgar­svæðinu vegna leitar í samvinnu við Lögregluna á höfuð­borgar­svæðinu. Leitað hefur verið á Suður­strönd Seltjarnarness, við Kársnes í Kópavogi og nærri Bessa­stöðum. 

Sigurður Kort Haf­steins­sonEr saknað frá því á fimmtu­dags­morgun.

Fyrr í dag lýsti lögreglan eftir Sigurði Kort Hafsteins­syni, 65 ára, sem hefur ekki sést síðan á fimmtudags­morgun. „Hann er 184 sm á hæð, grann­vaxinn og með grásprengt hár,“ segir í eftir­lýsingu lögreglu. „Sigurður er klæddur í bláar galla­buxur, dökkbláan jakka og með húfu (hugsanlega rauða). Síðast er vitað um ferðir Sigurðar í vesturbæ Kópavogs snemma á fimmtudags­morgun, 17. febrúar. Þau sem geta gefið upplýsingar um ferðir Sigurðar, eða vita hvar hann er að finna, eru vinsamlegast beðin um að hafa tafar­laust samband við lögregluna í síma 112.“

Á sama tíma og leitin stendur yfir fer veður versnandi og almanna­varnir hafa lýst yfir óvissu­stigi. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár