Reikna með að minnsta kosti 4.900 flóttamönnum til landsins á næsta ári

Gert er ráð fyrir að flótta­fólki sem sæki um vernd á Íslandi fjölgi á næsta ári en kostn­aður við þjón­ustu við það lækka um næstum millj­arð króna. Átta af hverjum tíu koma frá Úkraínu eða Venes­ú­ela.

Um 60 prósent alls flóttafólks sem sótt hefur um vernd á Íslandi í ár kom frá Úkraínu og var að flýja stríðið þar.
Um 60 pró­sent alls flótta­fólks sem sótt hefur um vernd á Íslandi í ár kom frá Úkraínu og var að flýja stríðið þar. Mynd: EPA

Í breyt­ing­ar­til­lögum meiri­hluta fjár­laga­nefndar við fjár­laga­frum­varpið, sem sam­anstendur af nefnd­ar­mönnum Sjálf­stæð­is­flokks, Vinstri grænna og Fram­sókn­ar­flokks, er lagt til að einum millj­arði króna verði bætt við þegar ákveðin útgjöld til að mæta kostn­aði vegna fjölg­unar umsækj­enda um alþjóð­lega vernd. Útlend­inga­stofnun gerir ráð fyrir að flótta­fólk sem kemur hingað til lands í leit að vernd verði 4.500 í ár. Miðað við óbreytta stöðu í Úkraínu og óbreytta stefnu gagn­vart Venes­ú­ela þá er áætlað að fjöldi umsókna 2023 verði að lág­marki 4.900.

Um er að ræða fram­lög til að standa undir þjón­ustu við flótta­fólkið, sem Vinnu­mála­stofnun fer með. Samkvæmt stofn­un­inni er áætl­aður heild­ar­kostn­aður 2022 vegna þjón­ust­unnar um 4.180 millj­ónir króna í ár. Í nefnd­ar­á­liti meiri­hlut­ans segir að miðað við að fjöld­inn vaxi í að lág­marki 4.900 á næsta ári verði heild­ar­kostn­aður 2023 verði um 3.200 millj­ónir króna sem er um 23 pró­sent minna en áætlun 2022 segir til um. „Ástæðan er m.a. sú að á árinu 2022 hefur verið fjár­fest tölu­vert í ein­skiptis­kostn­aði vegna búsetu­úr­ræða sem nýt­ast áfram á árinu 2023, svo sem ýmsum hús­bún­aði, rúmum og fleiru.“

Þegar Vinnu­mála­stofnun tók við þjón­ustu við flótta­fólk um mitt ár 2022 voru búsetu­úr­ræðin sem þeim stóð til boða á Íslandi þrjú. Í októ­ber hafði þeim fjölgað í 17, en hvert búsetu­úr­ræði getur hýst mis­mun­andi fjölda umsækj­enda.

Í fjár­laga­frum­varp­inu sem lagt var fram í haust var gert ráð fyrir um 2,2 millj­örðum króna í þennan mála­flokk á næsta ár. Upp­reiknuð þjón­ustu­þörf skilar því að nú á að bæta einum millj­arði króna við. Í nefnd­ar­á­lit­inu segir þó að ljóst sé að mjög erfitt sé að áætla fjölda umsókna um vernd fram í tím­ann og til­heyr­andi kostnað. „Gert er ráð fyrir að fjár­heim­ildin verði end­ur­skoðuð reglu­lega með hlið­sjón af fjölda flótta­fólks og umsækj­enda um alþjóð­lega vernd.“

Tvær stjórnsýslulegar ákvarðanir sitjandi ríkisstjórnar

Í nefnd­ar­á­liti meiri­hlut­ans segir að í lok sept­em­ber á þessu ári höfðu 3.238 manns sótt um alþjóð­lega vernd eða nærri fjór­falt fleiri en þeir sem sóttu um árið áður. Fjölg­un­ina má að stærstum hluta skýra með fólki sem er að flýja stríðs­á­stand í Úkraínu, en um 60 pró­sent þeirra sem sótt hafa um vernd koma þaðan. Þá hafa um 20 pró­sent komið frá Venes­ú­ela. Flótta­fólk frá þessum tveimur löndum fær svo til allt vernd með skömmum fyr­ir­vara sem bygg­ist á stjórn­sýslu­legum ákvörð­unum.

Þær eru tvær og voru báðar teknar af þeirri rík­is­stjórn sem nú situr að völdum. Önnur er frá árinu 2018 en þá var ákveðið að Útlend­inga­stofnun veitti umsækj­endum um alþjóð­lega vernd frá Venes­ú­ela við­bót­ar­vernd með vísan til almennra aðstæðna í heima­ríki óháð ein­stak­lings­bundnum aðstæðum hvers umsækj­anda. Reynt var að breyta þess­ari fram­kvæmd frá 1. jan­úar 2022 til að draga úr komu þessa fólks. Kæru­nefnd útlend­inga­mála felldi hins vegar úrskurð í júlí síð­ast­liðnum þar sem stóð að ástandið í Venes­ú­ela hefði ekk­ert lag­ast frá því að upp­haf­lega ákvörð­unin var tek­in, og raunar farið versn­andi „og að umfang og alvar­leiki glæpa gegn mann­kyni hafi auk­ist.“ Bætt ástand í Venes­ú­ela gat því ekki verið rök­stuðn­ingur fyrir því að synja umsækj­endum um við­bót­ar­vernd hér á land­i.

Hin var tekin 4. mars á þessu ári þegar Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra ákvað að virkja ákvæði útlend­inga­laga sem fól í sér að mót­taka flótta­manna frá Úkra­ínu hér­lendis myndi ná til sömu skil­greindu hópa og þeirra sem Evr­ópu­sam­bandið hafði ákvarð­að. „Þessi aðferð er fyrst og fremst til þess að geta veitt þeim sem flýja Úkra­ínu skjóta og skil­virka aðstoð, nánar til­tekið tíma­bundna vernd, án þess að mót­takan og aðstoðin verði vernd­ar­kerfi Íslands ofviða.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár