Heildarendurskoðun lögræðislaga samþykkt

Þings­á­lykt­un­ar­till­laga þar sem mælst er til að heild­ar­end­ur­skoðun lög­ræð­islaga fari fram og að kosin verði til þess sér­nefnd þing­manna hefur verið sam­þykkt á Alþingi. Þing­flokks­for­maður Pírata getur ekki beðið eftir því að hefj­ast handa.

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingflokksformaður Pírata.
Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­flokks­for­maður Pírata. Mynd: Bára Huld Beck

Alþingi sam­þykkti þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um end­ur­skoðun lög­ræð­islaga í dag. Markmið þess­arar heild­ar­end­ur­skoð­unar er að gera til­lögur um nauð­syn­legar breyt­ingar á lög­unum sem og á öðrum lögum, þar á meðal lögum um rétt­indi sjúk­linga, barna­vernd­ar­lögum, lögum um rétt­inda­gæslu fyrir fatlað fólk og almennum hegn­ing­ar­lögum. 53 þing­menn greiddu atkvæði með til­lög­unni og einn sat hjá.

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­flokks­for­maður Pírata, lagði þings­á­lykt­un­ar­til­lög­una fram og segir hún á Facebook-síðu sinni að sam­þykkt til­lög­unnar færi Íslend­inga nær því að afmá beina laga­lega mis­munun gegn fötl­uðu fólki og fólki sem er með, eða er talið vera með geð­sjúk­dóm, úr íslenskum lögum.

„Takist okkur vel til þá eflum við mann­rétt­indi allra á Íslandi og ég get ekki beðið eftir því að hefj­ast handa!“ skrifar hún.

Kosin verður sér­nefnd þing­manna en í nefnd­ina kýs Alþingi þing­menn úr öllum þing­flokkum sem sæti eiga á þingi og mun nefndin hafa víð­tækt sam­ráð við hlut­að­eig­andi stofn­anir og hags­muna­að­ila við vinnu að end­ur­skoð­un­inni, þar á meðal við sam­tök fatl­aðs fólks. Nefndin mun jafn­framt hafa sam­ráð við dóms­mála­ráðu­neytið, heil­brigð­is­ráðu­neytið og félags­mála­ráðu­neytið og munu ráðu­neytin vera nefnd­inni til ráð­gjafar við mat á nauð­syn­legum laga­breyt­ingum.

Auk almennrar heild­ar­end­ur­skoð­unar verður sér­stak­lega litið til ákvæða samn­ings Sam­ein­uðu þjóð­anna um rétt­indi fatl­aðs fólks um afnám allrar mis­mun­unar gagn­vart fólki með fötlun, rétt fatl­aðra ein­stak­linga til þess að njóta lög­form­legs hæfis til jafns við aðra, stuðn­ing við ákvarð­ana­töku í stað stað­geng­ils­á­kvarð­ana­töku, rétt fatl­aðra ein­stak­linga til frelsis til jafns við aðra, afnám þving­andi með­ferðar og lyfja­með­ferðar á grund­velli fötl­unar og rétt fatl­aðs fólks til við­eig­andi aðlög­unar.

Þór­hildur Sunna sagði í sam­tali við Kjarn­ann í byrjun mars síð­ast­lið­ins að til­lagan væri ein­ungis fyrsta skref­ið. „Til­lagan gengur út á það að Alþingi sam­þykki að heild­ar­end­ur­skoðun fari af stað og að hún eigi sér ekki stað inni í dóms­mála­ráðu­neyt­inu heldur á vett­vangi þings­ins. Og að farið verði með hana á svip­aðan hátt og end­ur­skoðun útlend­inga­lag­anna á sínum tíma,“ sagði hún og benti á að for­dæmi væru einmitt fyrir því í svona mál­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár