Þingmaður telur núgildandi lögræðislög vanvirða og mismuna fólki

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­flokks­for­maður Pírata, leggur til að lög­ræð­is­lögin verði end­ur­skoðuð í heild sinni. Hún telur fólk hafa rétt á að taka sjálf­stæðar ákvarð­anir í lífi sínu og ráða sínum högum sjálft.

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir
Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir Mynd: Brynjar Snær

Tólf þing­menn hafa lagt fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu á Alþingi þar sem mælst er til að heild­ar­end­ur­skoðun lög­ræð­islaga fari fram og að kosin verði til þess sér­nefnd þing­manna. Í nefnd­ina kjósi Alþingi þing­menn úr öllum þing­flokkum sem sæti eiga á Alþingi. Haft verði sam­ráð við sam­tök fatl­aðs fólks við vinnu að end­ur­skoð­un­inni. Auk almennrar heild­ar­end­ur­skoð­unar verði sér­stak­lega litið til ákvæða samn­ings Sam­ein­uðu þjóð­anna um rétt­indi fatl­aðs fólks.

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­flokks­for­maður Pírata, leggur fram til­lög­una en með henni er einn vara­þing­maður Pírata sem og þing­menn úr Viðreisn, Sam­fylk­ing­unni, Flokki fólks­ins og Pírötum.

Í þings­á­lykt­un­ar­til­lög­unni kemur fram að nefndin skuli leggja áherslu á að flýta eins og kostur er breyt­ingum sem ætlað er að afnema ólög­mæta mis­munun gegn fötl­uðum og leggja fram frum­varp þar að lút­andi svo fljótt sem auðið er. Forseti Alþingis skuli tryggja nefnd­inni nauð­syn­lega aðstöðu og sér­fræði­að­stoð til að sinna end­ur­skoð­un­inni.

Einungis fyrsta skrefið

Þór­hildur Sunna segir í sam­tali við Kjarnann að til­lagan sé ein­ungis fyrsta skrefið. „Tillagan gengur út á það að Alþingi sam­þykki að heild­ar­end­ur­skoðun fari af stað og að hún eigi sér ekki stað inni í dóms­mála­ráðu­neyt­inu heldur á vett­vangi þings­ins. Og að farið verði með hana á svip­aðan hátt og end­ur­skoðun útlend­inga­lag­anna á sínum tíma,“ segir hún og bendir á að for­dæmi séu einmitt fyrir því í svona málum.

„Ástæðan fyrir því að mér finnst þetta mik­il­vægt er að dóms­mála­ráðu­neytið hefur nú þegar staðið að ein­hverju sem þau töldu vera heild­ar­end­ur­skoðun. Þeirri vinnu lauk 2015 og þau lög tóku gildi 2016,“ segir hún.

Endurskoðun laganna uppfyllti ekki tilmæli Evrópunefndar

Þór­hildur Sunnar segir að hún brenni fyrir þessu mál­efni vegna þess að þegar hún starf­aði fyrir Geðhjálp þá vann hún við úttekt á því hvernig þessum lögum hefði mis­tek­ist að upp­fylla skil­yrði samn­ings Sam­ein­uðu þjóð­anna um rétt­indi fatl­aðs fólks, grunn­skil­yrði Mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu og dómafor­dæmis Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu né heldur hefði end­ur­skoðun dugað til þess að upp­fylla til­mæli Evr­ópu­nefndar um varnir gegn pynt­ingum og annarri van­virð­andi eða ómann­úð­legri með­ferð eða refs­ingu.

„Ég vænti þess að þessar stað­hæf­ingar mínar verði stað­festar af þess­ari nefnd þegar hún kemur hingað til lands á þessu ári en nú er fyr­ir­huguð heim­sókn til Íslands. Síðast kom nefndin árið 2012 og gaf út skýrslu árið eftir. Þar voru end­ur­tekin mörg af til­mælum nefnd­ar­innar sem hún hefur komið með frá árinu 1994 – frá fyrstu heim­sókn – og svörin frá Íslandi þá bentu til þess að ekki stæði til að breyta þessu með neinum hætti – og það kom líka á dag­inn. Allavega gagn­vart þessum ákvæðum sem mér finnst vera hvað alvar­leg­ust,“ segir Þór­hildur Sunna en hún telur að heild­ar­end­ur­skoð­unin sem fram fór hafi ekki kom­ist með tærnar þar sem hún þurfti að hafa hæl­ana.

Þakklát fólki sem vinnur í geðheilbrigðiskerfinu

Vert er að rýna í hvað svo­kallað lög­form­legt hæfi þýðir í þessu sam­hengi en það sam­anstendur af rétt­hæfi og ger­hæfi. Rétthæfi er eitt­hvað sem fólk öðl­ast við fæð­ingu og heldur til dauða­dags, það er rétt­ur­inn til þess að hafa rétt­indi – til að mynda réttur til lífs eða eign­ar­réttur. „Við öðl­umst þessi rétt­indi við fæð­ingu og ættum öll að heita jöfn fyrir lögum,“ útskýrir Þór­hildur Sunna. Gerhæfi er rétt­ur­inn til þess að nýta sér rétt­indi sín – til dæmis að skrifa undir kaup­samn­ing eða leigu­samn­ing eða skrifa greinar í blöðin. „Þá ertu að nýta tján­ing­ar­frelsið þitt, og svo fram­vegis. Lög­ræð­is­lögin inni­halda marg­vís­leg inn­grip inn í ger­hæfi fólks. Og þau mis­muna fötl­uðu fólki og fólki með alvar­lega geð­sjúk­dóma. Því er mis­munað svaka­lega í þessum lögum,“ bendir hún á.

Þór­hildur Sunna segir að sér finn­ist mik­il­vægt að fram komi að með gagn­rýni sinni á lög­ræð­is­lögin – það er að segja lag­ara­mmann sem gildir í kringum þessi úrræði – þá sé hún ekki að setja út á störf geð­heil­brigð­is­starfs­manna að neinu leyti. „Ég er ekki að halda því fram að þau séu sýknt og heil­agt í ein­hvers konar sam­særi með valda­mönnum um að koma sak­lausu fólki inn á stofn­anir. Ég er alls ekki að segja það. Laga­kerfið er aftur á móti ekki nægi­lega sterkt til að vernda mis­notkun á þessu kerfi. Það hljóta allir að vera sam­mála um að vilja bæta það,“ segir hún. Fólk í geð­heil­brigð­is­kerf­inu vinni mjög óeig­in­gjarnt og mik­il­vægt starf og fái oft allt of lítið þakk­læti fyrir það. Hún seg­ist vera mjög þakk­lát því fólki fyrir það starf sem það vinnur.

Bein lagaleg mismunun gagnvart fólki með geðsjúkdóma

Eins og áður segir felur til­lagan í sér að Alþingi skipi nefnd átta þing­manna úr öllum flokkum, það er einn þing­mann úr hverjum flokki, til þess að ráð­ast í heild­ar­end­ur­skoðun á lög­ræð­is­lögum. Þessi nefnd á líka að setja það í for­gang að afnema öll ákvæði lög­ræð­islaga sem mis­muna fötl­uðu fólki með beinum hætti í lögum. Í ræðu Þór­hildar Sunnu í pontu á Alþingi, þar sem hún kynnti frum­varpið þann 7. febr­úar síð­ast­lið­inn, segir hún að þar eigi hún við ákvæði í lög­ræð­is­lögum, sem setur það sem skil­yrði frels­is­svipt­ingar að við­kom­andi aðili þjá­ist af geð­sjúk­dómi, að líkur séu á að svo sé, að ástandi hans sé þannig háttað að því megi jafna við alvar­legan geð­sjúk­dóm eða að hann þjá­ist af vanda gagn­vart áfengis- eða fíkni­efna­mis­notkun.

„Að alvar­legur geð­sjúk­dómur einn og sér, eða grunur þar um, telj­ist nægj­an­legt skil­yrði til jafn alvar­legs inn­grips í frelsi og rétt­indi ein­stak­linga og nauð­ung­ar­vistun sann­ar­lega er er bein laga­leg mis­munun gagn­vart fólki með geð­sjúk­dóma eða ætl­aða geð­sjúk­dóma. Þetta er eitt­hvað sem Evr­ópu­nefnd um varnir gegn pynt­ingum og annarri van­virð­andi með­ferð eða refs­ingu hefur bent á frá sinni fyrstu heim­sókn til Íslands árið 1994 án þess að telj­andi við­brögð hafi verið að sjá eða finna hjá stjórn­völdum á Íslandi, sem er að sjálf­sögðu miður,“ segir hún.

Vit haft fyrir fólki

Þór­hildur Sunna segir að í til­lög­unni sé lagt til að þessu fyr­ir­komu­lagi verði breytt og að snúið verði af þeirri braut sem henni finnst lög­ræð­is­lögin vera á en henni finnst þau van­virða og mis­muna fólki á grund­velli þess að það er ekki talið vita hvað því sé fyrir bestu. „Þetta er við­var­andi við­horf margra gagn­vart fólki með geð­sjúk­dóma, gagn­vart fólki með geð­fötlun, að það hafi ekki vit á því sem því er fyrir bestu og geti ekki vitað hvers konar lyfja­með­ferð það eigi að fá og eigi ekki endi­lega fá að ganga laust ef læknir telur það ekki vera því fyrir bestu.“

Þrátt fyrir breyt­ingar á þessum lögum telur hún mik­il­vægt að ein­hvers konar neyð­ar­úr­ræði séu í lög­unum eins og hægt er að sjá í mörgum nágranna­lönd­unum og í flestum lýð­ræð­is­ríkjum. „Þau hafa vissu­lega neyð­ar­úr­ræði til nauð­ung­ar­vist­unar í sínum lögum en þar er skýrt afmarkað og þar er mjög skýrt að um neyð­ar­úr­ræði er að ræða sem ein­ungis er gripið til ef lífi við­kom­andi eða heilsu stafar veru­leg ógn af, nú eða ann­arra. Þessu er ekki fyrir að fara í lögum okkar um nauð­ung­ar­vistun. Þar eru engin skil­yrði sett um að lífi við­kom­andi aðila eða heilsu stafi ógn af því verði hann ekki nauð­ung­ar­vi­staður. Þar er heldur ekki að finna skil­yrði fyrir því að a.m.k. tveir sér­fræð­ingar í geð­heil­brigði verði að kom­ast að sömu nið­ur­stöðu um nauð­syn nauð­ung­ar­vist­unar, sér­stak­lega þegar kemur að áfram­hald­andi nauð­ung­ar­vistun,“ segir hún.

Verið að vanvirða rétt fólks til að taka sjálfstæðar ákvarðanir

Í lok ræð­unnar seg­ist hún telja að ef Íslend­ingar tryggi ekki að það sé ein­ungis ýtrasta neyð­ar­úr­ræði að beita fólk þving­unum, að neyða það til að gera hluti sem það vill ekki gera, að læsa það inni, loka það af án þess að haft sé fyrir því rétt­mætar og lög­mætar ástæður, þá geti hún ekki talið það rétt­læt­an­legt.

„Mér finnst það vera mis­munun. Mér finnst það vera for­ræð­is­hyggja. Mér finnst það van­virða rétt stórs hóps fólks í sam­fé­lag­inu til að taka sjálf­stæðar ákvarð­anir í lífi sínu og ráða sínum högum og stjórna sinni heil­brigð­is­þjón­ustu sjálft. Ég lít á það sem sjálf­sagðan hlut að ég geti sagt nei við þeim lyfjum sem læknir leggur til að ég taki við einum sjúk­dómi eða öðrum, að ég geti valið hvar ég kýs að búa og verði ekki fang­elsuð nema ég brjóti af mér á þann hátt að það telj­ist nauð­syn­legt til verndar almanna­hags­munum,“ segir hún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár