Gríðarstór jarðskjálfti reið yfir landið

Skjálftinn var um 5,6 að stærð og fannst vítt og breitt um landið, allt frá Vestmanna­eyjum í suðri og vestur á Flateyri. Skjálftinn tengist ekki eldvirkni heldur er af völdum fleka­hreyfinga á Reykjanesi.

Í beinni útsendingu Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra var í beinu viðtali við Washington Post á þegar skjálftinn reið yfir.

Gríðar­stór jarð­skjálfti reið yfir landið klukkan 13:43 í dag. Fannst skjálftinn vítt og breitt um landið, en tilkynnt hefur verið um að fólk hafi fundið fyrir skjálftanum á höfuð­borgar­svæðinu, í Vestmanna­eyjum, á Vestur­landi, Vestfjörðum og Norður­landi. Samkvæmt Almanna­vörnum var skjálftinn 5,6 að stærð og átti upptök sín í Núpa­hlíðarhálsi, um 7 kílómetra vestur af Kleifar­vatni.

Ljóst er að skjálftinn tengist ekki eldvirkni heldur er tilkominn vegna fleka­hreyfinga. Yfir 50 eftir­skjálftar hafa fylgt í kjölfar stóra skjálftans. Skjálftinn er sá stærsti á Reykjanesi frá árinu 2013, en þá varð skjálfti að stærðinni 5,2 í október­mánuði og átti hann upptök sín skammt utan Reykjaness. Þá er þetta stærsti skjálfti sem orðið hefur á Suður­landi frá árinu 2008 en þá varð skjálfti upp á 5,3 sem átti upptök sín skammt frá Hvera­gerði. 

Alþingi: Sitjið rólegir

Ekki hafa fengist upplýsingar um tjón af völdum skjálftans en ljóst er að fólk er mjög skekið. Þannig brá þingmanni Pírata, Helga Hrafni Gunnars­syni, augljós­lega talsvert þegar skjálftinn reið yfir meðan hann stóð í ræðustól Alþingis.  Stein­grímur J. Sigfússon, forseti Alþingis, var hins vegar hinn rólegasti. „Sitjiði rólegir, sitjiði rólegir,“ sagði Stein­grímur á meðan að Helgi Hrafn tók til fótanna.

Helgi Hrafn sér spaugilegu hliðina

Samkvæmt leið­beiningum Almanna­varna við jarð­skjálftum brást Helgi Hrafn ekki rétt við í þessu tilviki. Almanna­varnir leggja áherslu á að halda eigi kyrru fyrir, sé fólk innandyra, fara undir borð eða rúm og verja höfuð og háls. Halda ætti sig frá gluggum.

Helgi Hrafn virðist þó hafa jafnað sig fljótt á skjálftanum en á Twitter situr hann undir skensi fyrir viðbrögð sín. Hann svarar þó vel fyrir sig og segir kersknis­lega að hann biðjist afsökunar á að hafa ekki komið Steingrími J. til bjargar.

Forsætisráðherra í beinni útsendingu

Katrín Jakobs­dóttir forsætis­ráðherra var í beinu viðtali við Washington Post á þegar skjálftinn reið yfir. Var forsætis­ráðherra greini­lega mjög brugðið þegar allt lék skyndi­legaá reiði­skjálfi. „Oh my good, there‘s an earthquake,“ sagði Katrín við blaðamann blaðsins og bætti svo við: „Well, this is Iceland, sorry about that.“

Búast við eftirskjálftum

Athugasemd jarð­vísinda­manns á Veður­stofu Íslands: Klukkan 13:43 varð stór skjálfti á Reykjanesi Fyrsta stærðarmat er að skjálftinn hafi verið af stærð M5.5 um 7 km vestur af Kleifar­vatni. Fjölmargir eftir­skjálftar hafa fylgt í kjölfarið.

Almanna­varnir hafa gefið út eftir­farandi tilkynningu vegna skjálftans:Vegna jarð­skjálfta sem fannst á suðvestur­horni landsins. Fyrstu upplýsingar frá Veður­stofu Íslands segja að hann hafi verið af stærðinni 5,5 og á upptök sín 6 km. vestan við Kleifar­vatn. Búast má við eftir­skjálftum.

Almanna­varnir hvetja fólk til þess að kynna sér viðbrögð eftir jarð­skjálfta. Þau má sjá hér.

Bráðabrigðamælingin hefur nú verið uppfærð og nú er talið að skjálftinn hafi verið um 5,7 að stærð samkvæmt vefsíðu Veður­stofunnar.

Leið eins og það væri að líða yfir hana

Á Flateyri fundu Ingibjörg Guðmunds­dóttir, skóla­stjóri Lýðskólans og Helena Jóns­dóttir, verkefna­stjóri Flateyrar fyrir skjálftanum. „Þetta var mjög fyndið,“ segir Helena og heldur áfram. „Ég er með lítinn tölvuskjá fyrir framan mig hérna á skrif­stofunni. Ég hallaði mér fram á borðið og setti hendurnar undir höku og allt í einu fannst mér eins og það væri að líða yfir mig. Svo aftur þremur eða fjórum sekúndum síðar fannst mér aftur vera að líða yfir mig en hélt áfram að vinna. Svo heyrði ég þá hérna frammi vera að tala um að það hefði orðið jarð­skjálfti.“ Ingibjörg segir hinsvegar að hún hafi ekki fundið mikið fyrir skjálftanum. „Þetta var nú bara eins og bíll að keyra fram hjá,“ segir hún.

Borgarfulltrúar hlupu út „í panikki“

Kristín Soffía Jóns­dóttir, borgar­fulltrúi Samfylkingarinnar í Reykjavík, hljóp út af borgar­stjórnar­fundi ásamt fjórum öðrum borgar­fulltrúum. „Stór hluti af salnum er gluggi en allt glerið titraði og skalf. Svo hangir járntjald úr loftinu svo við vildum forða okkur út úr salnum,“ segir hún í samtali við Stundina. Aldrei áður hefur Kristín orðið hrædd við jarð­skjálfa en nú hafi hún orðið hrædd. Á Twitter ritar hún að borgar­fulltrúarnir hafi verið skelkaðir og að þeir hafi hlaupið um í „panikki.

Kötturinn með áfallastreituröskun

Elísabet Brynjars­dóttir, hjúkrunar­fræðingur hjá Frú Ragnheiði, hljóp undir borð þegar hún fann fyrir skjálftanum. Hún var að vinna að heiman við að svara tölvu­póstum þegar hún fann fyrst fyrir litlum skjálfta. „Ég er alin upp hérna í Reykjavík svo maður er ekki að kippa sér upp við litla skjálfta,“ segir hún.

Þegar Elísabet fann stærri skjálftann varð hún hrædd og ákvað að koma sér undir borð. „Það sem verra er að kötturinn minn sem ég fékk ættleiddann frá Villiköttum er með áfalla­streitu­röskun og hún varð mjög hrædd.“

Kisi liggur nú í sófanum umvafinn teppum og Elísabet er orðin öllu rólegri. Það fyrsta sem Elísabet gerði þegar skjálftanum lauk var að hringja í sína nánustu og athuga með þeirra líðan. „Ætli það sé ekki hjúkrunar­fræðinga hjartað, að athuga fyrst með alla aðra og taka svo stöðuna á sjálfri sér?“

Varaði við stórum skjálftum 

Fyrir tæpum mánuði síðan varaði Freysteinn Sigmundsson, jarð­eðlis­fræðingur við Jarð­vísinda­stofnun Háskóla Íslands, við því í samtali við Spegilinn á RÚV að íbúar á höfðuborgarsvæðinu og Reykja­nesskaga þyrftu að búa sig undir stóran skjálfta af stærðinni 6 til 6,5. Grannt væri fylgst með fimm eldstöðvum, Bárðabungu, Grímsvötnum, Heklu, Kötlu og Reykja­nesskaga. Á Reykja­nesskaga hefði síðasta ár einkennst af samspili kviku­hreyfinga og jarð­skjálfta­virkni. Háspenna væri á fleka­skilum. 

Jarð­skjálftinn í dag var ekki svo stór, en hann var engu að síður svo öflugur að margir lýstu áhrifum hans á samfélags­miðlum, jafnvel ótta. Eftir­farandi myndir voru teknar í Krónunni úti á Granda í kjölfar skjálftans. 

Mikil umræða á samfélagsmiðlum

Fjölmargir hafa tjáð sig um skjálftann á samfélags­miðlum. Þannig rifjar Össur Skarp­héðinsson, fyrr­verandi utan­ríkis­ráðherra, upp á Facebook sögu af því þegar að samflokksmaður hans, Guðmundur Árni Stef­ánsson, fyrr­verandi félagsmála­ráðherra, stóð í ræðustóli Alþingis þegar harður skjálfti reið yfir. Mun Guðmundur Árni hafa sagt að lokinni ræðu: „Helvítis hörkuræða var þetta hjá mér! - Húsið bókstaf­lega skalf!“

Sumir eru þó rólegri en aðrir og gera bara grín að skjálftanum, eins og Kristján Freyr Halldórsson, sem vísar í þekkt minni af fyrri tíð og jafnframt í nútíma­pólitík.

Þá er augljóst að það skiptir máli í hvaða aðstæðum fólk er þegar það upplifir skjálfta sem þennan, eins og Karítas M. Bjarka­dóttir lýsir.

Heiðrún Helga Bjarna­dóttir sat við píanóið þegar skjálftinn reið yfir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fagradalsfjall

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár