Kara Connect vann verðlaun á Nordic Start Up Awards

Kara Connect vann „People's Choice Award“ á Nordic Startup Awards í Kaupmanna­höfn í gærkvöldi. Kara Connect er íslenskt hugbúnaðar­fyrirtæki stofnað af Þorbjörgu Helgu Vigfúsdóttur.

Kara Connect
Kara Connect Mynd: Facebook Kara Connect

Kara Connect, íslenska hugbúnaðar­fyrirtækið, vann „People's Choice Award“ á Nordic Startup Awards í Kaupmanna­höfn í gærkvöldi. Nordic Startup Awards eru verðlaun norrænna sprota­fyrirtækja.

Kara er rafræn skrif­stofa fyrir sérfræðinga sem veita hjálp, meðferð eða þjónustu í mennta- , velferðar- og heilbrigðis­geiranum. Samkvæmt heimasíðu Kara er markmiðið að bylta aðgengi skjólstæðinga að sérfræði­þjónustu og um leið nútíma­væða starfs­umhverfi sérfræðinga. Skjólstæðingar geta sótt meðferð eða þjálfun sem sérfræðinga veita í gegnum öruggan og einfaldan fjarfundar­búnað og sérfræðingar fá að auki aðgang að vinnu­svæði sem sinnir bókunum, dagatali, vefmynd­búnaði og fjármála­umsýslu.

Kara Connect var tilnefnd í þremur flokkum á Nordic Startup Awards; „Startup of the Year“, „Best Health Care Startup“ og Þorbjörg Helga sem er stofnandi fyrir­tækisins var tilnefnd sem „Founder of the Year“.

Sproti ársins á Íslandi

Kara Connect hafði áður unnið sproti ársins á íslensku verð­laununum í frumkvöðla­keppni Nordic Startup Awards sem veitt voru í Ægisgarði í september. Á þeim verð­launum var Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir einnig valin fjár­festir ársins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár