Mynd: Pexels

Hjálpin í gegnum netið

Sífellt fleiri nýta sér sálfræði­þjónustu í gegnum netið erlendis og hafa sérfræðingar hér á landi verið að prufa slíka þjónustu. Mikil fyrirhöfn getur falist í því að sækja sér aðstoð fyrir fólk á lands­byggðinni en slík þjónusta gæti létt fólki lífið.

Fjar­meðferðir eru að ryðja sér til rúms á tímum þar sem fólk reiðir sig á tölvur í ríkara mæli. Með þeim er hægt að sækja sér sálfræði­þjónustu í gegnum netið og eru einstaklingar sem þurfa á slíkri þjónustu að halda ekki stað­bundnir. Lands­byggðin hefur löngum verðið verr sett saman­borið við höfuð­borgar­svæðið þegar kemur að aðgengi að þjónustu og þykir sumum fjar­meðferðir leysa ákveðinn hluta vandans.

Umræðan komin skammt á veg

Sálfræðingurinn Sigur­björg Ludvigs­dóttir hefur sinnt nokkrum skjólstæðingum sínum í gegnum netið í u.þ.b. ár. Hún hefur einnig handleitt aðra sálfræðinga sem hafa verið að veita meðferð með þessum hætti á fjar­fundum. Fólkið hjá Tölum saman, sem er fjar­þjónusta Kvíða­meðferðar­stöðvarinnar, fékk styrk frá heilbrigðis­ráðuneytinu í ársbyrjun til að bjóða upp á fjar­meðferð og halda utan um árangurs­tölur og fleira. Enn hefur ekki verið farið af stað með verkefnið því beðið er eftir viðbrögðum frá Land­læknis­embættinu. Sigur­björg segir að umræðan sé ekki komin mjög langt á leið hér á landi en að áhuginn sé alltaf að aukast, sérstak­lega úti á landi.

Hún segir að reynslan hafi verið mjög góð hingað til. Til að byrja með hafi hún haft áhyggjur af því að ná ekki nægilega góðum tengslum við skjólstæðinga sína í gegnum netið. Svo virðist þó ekki vera og segir Sigur­björg að hún hafi náð þessum góðu tengslum þrátt fyrir fjar­lægðina. Það sýni reynsla hennar en hún bendir einnig á að rann­sóknir sýni fram á að bæði skjólstæðingar og meðferðar­aðilar hafi góða sögu að segja um fjar­meðferðir.

Hentar fólki með vægari vanda

Sigur­björg sinnir fyrst og fremst kvíða­meðferð og segir hún að hluti af því sé að taka fólki í æfingar og gera tilraunir og fleira. Þannig sé ekki hægt að gera sömu æfingar í fjar­meðferð og annars væri hægt með sjúklinginn á staðnum. „Þá reynir á að fólkið sé reiðubúið að gera það sem gera þarf til að ná bata,“ segir hún. Það virðist ekki vera vandamál, enn sem komið er.

Hún segir jafnframt að meðferð af þessu tagi henti síður fólki með alvarlegan eða mjög flókinn vanda. Þá sé betra að hafa fólk á staðnum og fagaðila í kring. Fólk með vægari og afmarkaðri vanda sé móttækilegra fyrir fjar­meðferð. Hún bendir þó á að frekari reynsla eigi eftir að koma á slíkar meðferðir en tilfinning hennar sé þessi.

Ákveðin vandkvæði fylgja slíkri meðferð, að mati Sigur­bjargar, en það gæti verið snúið að nýta slíka þjónustu við til að mynda afmarkaðri fælni. Þá nefnir hún meðferðir sem fólgnar eru í því að vera með viðkomandi í aðstæðum, til dæmis dýrafælni og innilokunar­kennd. Þegar sálfræðingurinn er með skjólstæðingnum í æfingum þá þarf hann að vera á staðnum, að hennar sögn. En meðferðir við almennri kvíða­röskun eða félags­fælni myndu henta einkar vel í fjar­meðferð.

Regluverkið á að gera ráð fyrir fjarmeðferðum

Sigur­björg segist ekki vera farin á fullt í slíka starfsemi enda sé enn verið að móta reglu­gerðir hjá Land­læknis­embættinu og því sé ekki gert ráð fyrir fjar­þjónustu í kerfinu. Þess vegna er þetta enn á tilrauna­stigi og ákveðin óvissa í kringum ferlið.

Hún telur að reglu­verkið eigi að gera ráð fyrir fjar­meðferðum fyrir fólk að nýta ef því hentar. „Við búum í landi þar sem lítið aðgengi er að sálfræði­þjónustu fyrir lands­byggðina,“ segir hún og bætir við að margir þurfi að ferðast langar leiðir til að leita sér aðstoðar. Þetta eigi einnig við um fólk sem kemst ekki að heiman af einhverjum ástæðum. Hún telur slíka þjónustu einnig henta fólki sem ferðast mikið eða starfi erlendis. Þá sé gott að geta leitað sér sálfræði­þjónustu á móður­málinu hvar sem er í heiminum. Sigur­björg bendir á í þessu samhengi að sálfræðingarnir sérhæfi sig í ákveðnum tegundum af sjúkdómum og að flestir séu þeir í Reykjavík.

Fólk af erlendum uppruna með annan menningar­legan bakgrunn gæti einnig nýtt slíka þjónustu, að mati Sigur­bjargar. Það gæti leitað sér aðstoðar í sínu heima­landi í gegnum netið og myndi þetta því opna á fjölda möguleika.

Við búum í landi þar sem lítið aðgengi er að sál­fræði­þjón­ustu fyrir lands­byggð­ina.

Góðir verk­ferlar nauðsyn­legir Sigur­björg segir að fjar­meðferðir séu notaðar erlendis í meira mæli en hér á landi, til að mynda í Svíþjóð, Noregi, Ástralíu og Banda­ríkjunum. „Það er ekkert sem bendir til þess að þetta ætti að vera eitthvað síðra en þegar fólk þiggur sína sálfræði­þjónustu á stofu,“ segir hún.

Hún segir að lokum að nauðsynlegt sé að vera með góða verkferla í kringum svona verkefni til að tryggja öryggi sjúklings, netöryggi þurfi að vera til staðar o.s.frv.

Unnið að leiðbeiningum

Núverandi ramma­samningur milli sjálfstætt starfandi geðlækna og Sjúkra­trygginga Íslands býður ekki upp á þann möguleika að geðlæknir veiti skjólstæðingum viðtöl í gegnum fjar­þjónustu.

Land­læknis­embættið hefur aftur á móti reynt að leiðbeina þeim aðilum sem eru á bakvið þau verkefni sem komið hafa fram með fjar­heilbrigðis­þjónustu. Þetta segir í svari embættisins við fyrir­spurn Kjarnans.

„Í ljósi þess fjölda verkefna sem sprottið hafa upp á síðustu mánuðum telur embættið nauðsynlegt að setja skýrari kröfur varðandi slíka þjónustu og undirbýr nú leið­beiningar fyrir þá aðila sem hyggjast stunda fjar­heilbrigðis­þjónustu. Embættið hefur safnað slíkum leið­beiningum frá samstarfs­aðilum á hinum Norður­löndunum og er nú að vinna úr þeim og setja upp frumdrög að íslenskum leið­beiningum,“ segir í svarinu.

Fólk losnar við umstang

Tilraunir hafa verið gerðar með hugbúnað fyrir fjar­meðferðir en Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir stofnaði fyrir­tækið Kara Connect með samstarfs­fólki sínu á síðasta ári. Hún segir að Kara sérhæfi sig í að þjónusta sérfræðinga til að ná tengslum við skjólstæðinga sína á einfaldan og öruggan hátt.

Hún segir að viðbrögðin við kerfinu hafi verið mjög góð en hún telur að kostir fjar­meðferða séu margir, til að mynda sparist ferðatími milli staða og kostnaður. Einnig telur hún kost að losna við umstangið við að finna meðferðar­aðila og komast að því hver borgar og segir hún að fólk losni við langa biðlista. „Það eru margar litlar breytur sem einfaldast mjög mikið,“ segir hún.

Bylting í aðgengi að hjálp

Þorbjörg talar um fjar­meðferð sem mikla byltingu í aðgengi að hjálp og segir að það sé aðal­mantra þeirra sem vinna að þessum forritum. Hún segir að sérfræðingarnir geti verið hreyfanlegir með Köru, þeir fái öll þau forrit sem þeir þurfi til að nýta í reksturinn auk öruggrar myndfundar­gáttar og meðferðar­nótna. Þeir geti með tækninni bætt reksturinn sinn til muna.

„Stóra hugmyndin er að skjólstæðingarnir geti leitað sjálfir að réttum sérfræðingum. Við ætlum að byggja þetta þannig upp að nógu margir sérfræðingar verði í gagna­banka,“ segir hún. Þá gæti fólk flett þeim upp sem geta aðstoðað við hvers konar vandamál sem upp koma.

Það er ekk­ert sem bendir til þess að þetta ætti að vera eitt­hvað síðra en þegar fólk þiggur sína sál­fræði­þjón­ustu á stofu.

Ísland á eftir öðrum löndum

Þau stefna á að færa út kvíarnar erlendis. Þorbjörg segir að Ísland sé eilítið á eftir þegar kemur að þessum málum og að Íslendingar eigi eftir að læra margt. Rann­sóknir hafi sýnt að fjar­þjálfun virki vel og að kynna þurfi slíka starfsemi ennþá betur innan heilbrigðis­kerfisins.

139 sérfræðingar eru nú þegar skráðir í kerfið og hafa lokið 7000 þjálfunar­klukku­stundum á hálfu ári í gegnum myndfundi. Vegna góðra viðbragða telur Þorbjörg að sérfræðingar hafi verið að bíða eftir einhverju sambærilegu en víða erlendis hafi svipuð módel verið sett upp og notuð í sama tilgangi.

Umræðan brýn

Þorbjörg segir að nauðsynlegt sé að fá umræðu í gang um fjar­meðferðir, það sé komin tími til að nýta tæknina til að ná til fólks og þjónusta það.

Hún segir að allir tali fyrir þessum breytingum hér heima en lög og reglur séu ekki að taka mið að þessari þróun sem sé synd, sérstak­lega í svo dreifbýlu landi. Hún segir að erlendis hafi hlutirnir gengið hraðar, til dæmis sé vinsælt orðið að bjóða þjónustu heilsugæslu­lækna á netinu.

Enn fremur segir hún að samkeppni sé um heilsu­gæslur á netinu í Svíþjóð og væri upplagt að létta undir með starfseminni hér á landi með því að nýta sömu tækni. „Þá er hægt að ráða til sín verktaka sem er tengdur til tölvu og komið á samskiptum á milli sérfræðings, sálfræðings eða félags­ráðgjafa og skjólstæðings,“ segir hún. Hún telur jafnframt að stundum vanti upp á að hugsa út fyrir sveitar­mörk og landamæri varðandi þessa hluti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár