Uber metið á 6.700 milljarða króna

Leigubíla­þjónustan Uber er metin á 51 milljarð Bandaríkja­dala eða sem nemur rúmlega 6.700 milljörðum króna, samkvæmt verðmati sem liggur fyrir frekari fjár­mögnun fyrir­tækisins. Hugbúnaðar­risinn Microsoft er sagður vera á meðal þeirra sem ætla sér að fjárfesta í Uber.

Fyrir­tækið er ört vaxandi, ekki síst í Asíu, og þykja sóknar­færi þess vera gríðar­lega mikil um nær allan heim. Nýlega keypti Uber korta­hugbúnaðar­lausn Microsoft til þess að styrkja korta­grunninn sem Uber notendur geta nýtt sér.

Samkvæmt því sem fram kemur í New York Times gæti fjár­festing Microsoft í fyrir­tækinu orðið um einn milljarður Bandaríkja­dala, eða um 133 milljarðar króna.

We're proud to participate in the #WHCOA to share our senior community outreach program. http://t.co/jnGrFc6j7t https://t.co/bYAaTpia2X

— Uber (@Uber) July 13, 2015
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár