Kjarninn mælir með: Eldgos, drónaárásir og netrisar í vanda

Við lifum sögulega tíma, ekki aðeins hér á landi, heldur ekki síðar erlendis. Ritstjórn Kjarnans fylgist vel með gangi mála, og má hér að neðan finna umfjallanir sem að mati ritstjórnar eru vandaðar, áhuga­verðar og skemmtilegar, hver með sínum ólíka hætti.

Kraftmikið eldgos í Chile - Vox


Eld­fjallið Calbuco vakn­aði til lífs­ins með hvelli á dög­unum. Eldgosið úr fjall­inu er gríð­ar­lega kraft­mikið og frétta­vef­ur­inn Vox birti mynd­band af því sem gengur á, sem sýnir vel hve kraft­ur­inn í nátt­úr­unni getur verið stór­brot­inn.

Kraft­miklar náttúru­hamfarir.

https://www.youtube.com/watch?v=_MdUQY6xQG4

Bandaríkjaher drap saklaust fólk og Obama baðst afsökunar - New York Times


Barack Obama for­seti Banda­ríkj­anna baðst afsök­unar á því í gær, að Banda­ríkja­her hefði drepið tvo gísla sem voru í haldi Al Qaeda hryðju­verka­sam­tak­anna. Hann sagð­ist taka fulla ábyrgð á aðgerðum Banda­ríkj­anna gegn hryðju­verkaógn­inni. Hann sagð­ist, sem faðir, varla geta ímyndað sér hversu sárs­auka­fullt það væri fyrir fjöl­skyldur gísl­anna tveggja, Warren Weinstein frá Banda­ríkj­unum og Giovanni Lo Porto, að fá þessar fréttir að Banda­ríkja­her hefði drepið menn­ina tvo í drón árás á valið skot­mark.

Vönduð umfjöllun og áhrifa­mikið ávarp forsetans

Bankarnir staðnir að umfangsmiklum lögbrotum - Wall Street Journal


Þýski bank­inn Deutsche Bank hefur verið sektaður um 2,5 millj­arða Banda­ríkja­dala, eða sem nemur tæp­lega 350 millj­örðum króna, fyrir umfangs­mikil lög­brot bank­ans á mark­aði. Starfs­menn bank­ans höfðu áhrif á vaxta­á­lag með ólög­mætum hætti, en eins og oft áður, þá eru starfs­menn bank­ans ekki sóttir til saka heldur er sektin látin duga. Greini­legt er á umfjöllun Wall Street Journal um þetta mál, að rit­stjórn blaðs­ins er með góða heim­ilda­menn enda mikla hefð fyrir vönd­uðum skrifum um efna­hags­mál.

Vönduð umfjöllun um mikilvægt mál fyrir almenning.

Evrópusambandið á eftir netrisum - Quartz


Samkvæmt því sem lesa má út úr skjölum sem láku frá Evr­ópu­sam­band­inu (ESB), þá stendur til að koma á fót eft­ir­lits­stofnun hjá ESB sem mun sjá til þess að Google, Facebook og Yahoo, og fleiri banda­rískir netrisar, mis­noti ekki yfir­burða­stöðu sína á mark­aði. Þetta veldur mörgum hug­ar­angri, og segir í umfjöllun Quartz, að margir lesi þetta sem aðgerð sem beint sé gegn banda­rískum fyr­ir­tækjum, til að hjálpa sam­keppn­is­að­ilum þeirra í Evrópu. Dæmi svo hver fyrir sig.

Áhugavert neytendamál.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár