Dönsk sveitarfélög hafa eytt hátt í 850 milljónum króna í sólarlandaferðir fyrir vandræðaunglinga

Fjöldi danskra sveitar­félaga hefur eytt um 42 milljónum danskra króna, eða 841,5 milljónum íslenskra, frá árinu 2010 í að senda 59 ungmenni í fíkniefna­neyslu eða afbrotum í óhefðbundna meðferð á gamlar snekkjur í Karíbahafinu. Danski frétta­miðillinn Metroxpress greinir frá málinu, sem hefur vakið töluverða athygli hér í Danmörku.

Metroxpress greindi fyrst frá því hvernig bæjar­yfirvöld í Hróars­keldu vörðu hátt í tuttugu milljónum íslenskra króna í ferðalag og uppihald síbrotaunglins, sem hlotið hafi dóm fyrir vopnað rán, til meðferðar í Karíbahafið. Kjarninn sagði frá umfjöllun danska frétta­miðilsins á dögunum, en nú hefur málið heldur betur undið upp á sig.

Meðferðir sem litlu hafa skilað


Sveit­ar­fé­lögin sem um ræðir eru 26 tals­ins, sam­kvæmt rann­sókn Metrox­press. Þau hafa verið gagn­rýnd fyrir að kasta fjár­munum á glæ með því að senda korn­unga glæpa­menn og fíkla í sól­ar­landa­ferð til ein­hvers konar með­ferðar. Þó ung­menn­inn búi við meiri aga en þau hafa mörg hver nokkurn tím­ann búið við, á meðan á dvöl þeirra stendur í sól­inni, hefur úrræðið þótt skila litlum árangri.

Þá hefur Metroxpress eftir nokkrum ungmennum í neyslu að þau hafi stundað nætur­lífið grimmt í Karíbahafinu á meðan þau dvöldust þar á kostnað danskra sveitar­félaga.

Sveitarfélög vöknuð upp við vondan draum


Mörg sveit­ar­fé­lag­anna hafa hins vegar ákveðið að senda ekki fleiri ung­menni í Karí­ba­hafið, en eitt þeirra er Albertslund sem gerði athuga­semd við fag­mennsku starfs­fólks með­ferð­ar­snekkj­anna.

„Það er mjög flókið að vinna með þessi börn, og þó þú kunnir að hnýta hnúta er það ekki endilega það sem til þarf. Fólkið sem er að vinna með þessum börnum þarf þjálfun og sérþekkingu, það er ekki nóg að hrópa á þau og segja þeim að klifra upp mastrið. Við hættum einfald­lega að trúa á að það væri hægt að galdra með söltu vatni,“ segir Terje Bech, forstöðu­maður fjöl­skyldu- og velferðar­sviðs Alberts­lund, í samtali við Metroxpress.

Þau tvö sveitar­félög sem hafa varið hvað mestu skattfé í sólarlanda­ferðir fyrir vandræða­unglinga eru Fredrikssund og Guldborgsund. Fyrr­nefnda sveitar­félagið hefur eytt tæpum átta milljónum danskra króna í ferðalög og uppihald tólf ungmenna í Karíbahafinu, það síðarnefnda varði rúmum 7,2 milljónum danskra í sambærilegt verkefni. Samanlagt hafa því sveitar­félögin tvö eytt hátt í 305 milljónum í íslenskum krónum talið í óhefðbundið meðferðar­úrræði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár