Vandræðaunglingur sendur á snekkju í Karabíska hafinu á kostnað sveitarfélagsins

Bæjar­yfirvöld í Hróars­keldu í Danmörku vörðu hátt í milljón danskra króna í ferðalag og uppihald sautján ára vandræða­unglings í Karabíska hafinu, eftir að hann hlaut dóm fyrir vopnað rán. Dagblaðið Metroxpress greinir frá málinu.

Unglingurinn, sem nefndur er Christian í umfjöllun Metroxpress, framdi rán í 7-Eleven verslun í Hróars­keldu árið 2009, íklæddur lambúshettu og vopnaður stórum grillhníf. „Í fjöl­skyldunni minni eru eintómir glæpamenn, þannig að ég varð það bara líka,“ hefur dagblaðið eftir Christian. „Ég byrjaði í afbrotum þegar ég var tólf til þrettán ára, þannig að ránið í 7-Eleven var bara enn einn glæpurinn.“

Christian var dæmdur til að undir­gangast áfengis- og fíkniefna­meðferð eftir ránið, en í stað þess að senda hann á til þess bæra meðferðar­stofnun, ákváðu bæjar­yfirvöld í Hróars­keldu að senda síbrota­unglinginn í Karabíska hafið á gamla snekkju. Á snekkjunni hafa vandræða­unglingar dvalist til lengri og skemmri tíma í óhefðbundinni meðferð.

Óforbetranlegur glæpamaður á leið í sólina


„Ég hélt alltaf áfram að brjóta af mér þrátt fyrir að hljóta dóma fyrir afbrotin, og svo kom ég mér líka oft­ast undan því að taka út mína refs­ingu. Svo þegar lög­mað­ur­inn minn og félags­ráð­gjafi stungu upp á þessu nýja úrræði tók dóm­ar­inn vel í þá hug­mynd,“ segir Christian.

Því næst keyptu bæjar­yfirvöld í Hróars­keldu undir Christian flugmiða í Karabíska hafið, þar sem hann dvaldist í eitt ár. Kostnaður bæjar­félagsins vegna ferðar hans og dvalar þar nemur hátt í 976 þúsund danskra króna, eða tæpum 19,5 milljónum íslenskra króna.

Hér má sjá Christian svamla í Karabíska hafinu skammt frá snekkjunni góðu.

Hér má sjá Christian svamla í Karabíska hafinu skammt frá snekkjunni góðu.
Hér má sjá Christian svamla í Kar­ab­íska haf­inu skammt frá snekkj­unni góðu.

„Þetta var virkilega skemmtilegt, og þá sérstak­lega að fá að sjá þennan hluta heimsins. En þetta var auðvitað ekki bara sældarlíf. Við sátum á skólabekk frá klukkan átta á morgnana og fram að hádegi, og þá tók vinna á bátnum við. En ég naut lífsins.“

Christian kveðst hafa skilning á furðu margra yfir því að svo miklum skatt­peningum hafi verið varið til að senda einn ræningja í Karabíska hafið til afplánunar. Þá bítur höfuðið af skömminni að ferðin í suðrænu höfin hefur ekki snúið Christian frá villu síns vegar. „Túrinn fékk mig því miður ekki til að hætta afbrotum,“ segir hann í samtali við Metroxpress. „Þegar ég kom heim ákvað bærinn að senda mig rakleiðis aftur í mitt gamla umhverfi, sem gerði mér ekki gott. Ég byrjaði fljótlega að selja hass og er nú meðlimur AK81,“ sem er stuðnings­klúbbur glæpa­samtaka Vítis­engla.

Bæjar­yfirvöld í Hróars­keldu hafa ítrekað neitað Metroxpress um viðtal vegna málsins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár