Joe Biden sagður vera að undirbúa framboð

Joe Biden, vara­for­seti Banda­ríkj­anna, íhug­ar nú hvort hann eigi að bjóða sig fram til þess að verða for­seta­efni Demó­krata­flokks­ins fyr­ir kosn­ing­arn­ar á næsta ári, sam­kvæmt heim­ild­um The New York Times.

Í umfjöllun New York Times seg­ir að ráðgjaf­ar Bidens séu byrjaðir að heyra hljóðið í hátt­sett­um mönn­um inn­an flokks­ins sem og þeim styrkt­araðilum sem hafa ekki lýst yfir stuðningi við Hillary Cl­int­on.

Fimm demó­krat­ar hafa nú þegar lýst því yfir að þeir sæk­ist eft­ir að verða for­seta­efni flokks­ins: Hillary, Bernie Sand­ers, Mart­in O'M­alley, Jim Webb og Lincoln Chafee. Hillary nýt­ur lang­mestra vin­sælda, en sam­kvæmt skoðana­könn­un­um fengi hún 55% fylgi, en Sand­ers aðeins 17%.


Joe Biden is thinking about jumping into the 2016 race, @NYTimesDowd writes. http://t.co/lRTVjikGGO pic.twitter.com/bb8IuK0U40


— The New York Times (@nytimes) August 1, 2015

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár