Evrópulönd niðurgreiða orku í kjölfar verðhækkana á gasi

Verð á gasi til húshitunar hefur hækkað töluvert í Evrópu á síðustu mánuðum. Til þess að bregðast við þessum hækkunum hafa ríkis­stjórnir Ítalíu, Spánar, Frakk­lands og Bretlands ákveðið að niður­greiða orku­útgjöld heimila í stórum stíl.

Miklar frosthörkur í Evrópu í fyrravetur leiddu meðal annars til að snjóþungt var í Madríd, höfuðborg Spánar.
Miklar frost­hörkur í Evrópu í fyrra­vetur leiddu meðal ann­ars til að snjó­þungt var í Madríd, höf­uð­borg Spánar. Mynd: EPA

Ríkis­stjórn Ítalíu samþykkti í vikunni nýjan björgunar­pakka sem felur í sér niður­greiðslur á orku­útgjöldum heimila þar í landi, sem hafa hækkað hratt á undan­förnum misserum. Umfang pakkans getur numið allt að 685 milljörðum króna, en hann er einn af mörgum sem ríkis­stjórnir Evrópu­landa hafa ráðist í á undan­förnum vikum til að bregðast við hækkandi verði á gasi til húshitunar.

Ráðherrar uggandi yfir verðhækkunum

Samkvæmt frétt sem birtist á vef Financial Times í gær hefur gasverð hækkað töluvert í álfunni á síðustu mánuðum. Að hluta til megi skýra verð­hækkunina með versnandi birgða­stöðu í löndunum þar sem síðasti vetur reyndist langur og kaldur, en einnig hafi minni gasútflutningur frá Rússlandi til Vestur- Evrópu átt sinn þátt í henni.

Financial Times greinir frá því að ráðherrar aðildar­ríkja Evrópu­sambandsins muni hittast í vikunni til að ræða hvernig hið opinbera ætti að bregðast við þessum verð­hækkunum. Ráðherrarnir óttast að hækkanirnar muni draga úr væntu efnahags­viðspyrnunni að lokum heims­faraldursins og aukið mótstöðu við fyrir­hugaðar loftslags­aðgerðir sambandsins, sem gert er ráð fyrir að verði kostnaðar­samar.

Gasvinnsla aukin í Norðursjó

Í síðustu viku samþykkti ríkis­stjórn Spánar að ráðast gegn svokölluðum okur­hagnaði orku­fyrir­tækjanna þar í landi og veita orku­kaupendum skatta­afslátt. Sömleiðis hefur franska ríkis­stjórnin hefur tilkynnt um 15 þúsund króna niður­greiðslu á orku­reikningi sex milljón lágtekju­heimila þar í landi.

Helge Hauganes, yfirmaður orku og jarðgass norska orku­fyrir­tækisins Equinor, segir í samtali við Financial Times að fyrir­tækið hafi ákveðið að bregðast við þessari verð­hækkun með aukinni fram­leiðslu á jarðgasi í Norðursjó. Equinor er stjórnað af norska ríkinu, en Noregur er næst­stærsti sölu­aðilinn á gasi til húshitunar á Evrópu­markaði, á eftir Rússlandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár