Ein mesta vísindauppgvötun síðari tíma - Einstein hafði rétt fyrir sér

Vísinda­menn hafa í fyrsta sinn mælt þyngdar­bylgjur og þar með fært sönnur á afstæðis­kenningu Alberts Einsteins og varpað nýju ljósi á hið dular­fulla þyngdarafl. Þetta er almennt álitin ein mesta uppgötvun vísindanna í langan tíma, og segir á vef The Guardian að um eina mestu uppgvötun aldarinnar sé að ræða.

Bylgjurnar urðu til við árekstur tveggja svarthola í órafjarlægð frá jörðu. David Reitze, framkvæmda­stjóri LIGO tilkynnti um niður­stöður rann­sóknanna á blaðamanna­fundi í Washington DC, höfuðborg Banda­ríkjanna, í dag. 

Hann sagði að þetta hefði mikla þýðingu fyrir heim vísindanna og að líklega þurfi ekki að bíða lengi eftir því að hlutir sjáist, sem enginn hefði getað hugsað sér að myndu sjást nokkru sinni.

Niður­stöðurnar eru í takt við það sem Einstein sagði fyrir fyrir tæpum hundrað árum og rennir enn frekari stoðum undir hina frægu afstæðis­kenningu hans. Afar erfitt er að nema bylgjurnar og LIGO starf­rækir risa­vaxnar rannsóknar­stöðvar víða um heim, en tókst með þrot­lausri vinnu að greina þær og rannsaka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár