Flugmaðurinn sagði Lufthansa frá þunglyndinu árið 2009

Lufthansa hefur greint frá því að Andreas Lubitz, flug­maðurinn sem brotlenti farþega­þotu viljandi í síðustu viku, sagði fyrir­tækinu frá því að hann hefði glímt við alvarlegt þunglyndi. Flug­félagið greindi frá þessu fyrir stundu, og segist vera búið að afhenda saksóknurum gögn um Lubitz.

Meðal þessara gagna eru tölvu­póstar frá Lubitz til flug­kennara sinna. Í póstunum, frá árinu 2009, sagði Lubitz frá því að hann hefði áður glímt við mjög alvarlegt þunglyndi. Þetta var eftir að hann snéri aftur í flugnám eftir veikindin.

Í gær var greint frá því að Lubitz hefði verið í meðferð fyrir nokkrum árum vegna sjálfsvígs­hugsana sem sóttu á hann. Saksókn­arar sem greindu frá því tóku þó fram að í læknis­meðferðum síðan þá hefði hann ekki sýnt nein merki um sjálfsvígs­hugsanir né vilja til þess að skaða aðra.

Lufthansa hefur hingað til neitað að greina opinber­lega frá því hvort félagið hafi vitað eitthvað um veikindi flug­mannsins, en hefur ítrekað sagt að hann hafi staðist allar læknis­skoðanir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár