Lyfjustarfsfólk ber smitvarnarhjálma í vinnunni

„Þeir eru notaðir til að draga úr smiti, sérstak­lega dropa­smiti sem getur komið frá fólki þegar það hóstar. Þannig að þetta er vörn fyrir okkur,“ segir Alfreð Ómar Ísaksson, lyfsali í Lyfju í Hafnar­stræti. Undan­farnar vikur hefur starfs­fólk versl­un­ar­innar, eins og starfs­fólk annarra Lyfju­verslana, borið hjálma við störf sín til að hindra smit kóróna­veirunnar.

Starfs­fólk verslana Lyfju hefur undan­farnar vikur sinnt störfum sínum með hjálma á höfði, en þeim er ætlað að hindra smit kóróna­veirunnar. Alfreð Ómar Ísaksson lyfsali í Lyfju í Hafnar­stræti segir að hjálmarnir hafi vanist nokkuð vel og þeir séu til lítilla trafala í starfi.

„Þeir eru notaðir til að draga úr smiti, sérstak­lega dropa­smiti sem getur komið frá fólki þegar það hóstar. Þannig að þetta er vörn fyrir okkur,“ segir Alfreð.

Hann segir að almennt hafi verið jákvætt viðhorf starfs­fólks gagnvart þessum höfuð­búnaði. „Þetta hindar reyndar svolítið samskiptin. Fólk heyrir síður í okkur, einkum eldra fók. En þá verðum við bara að brýna raustina vel til að koma skila­boðum til skila.“

Vel varinAlfreð Ómar Ísaksson lyf­sali, Thelma Björk Krist­ins­dóttir lyfja­tæknir og Helga Gunn­ars­dóttir umsjón­ar­maður versl­unar. Öll starfa þau í Lyfju í Hafn­ar­stræti þar sem starfs­fólk hefur borið hjálma und­an­farnar vikur.

Hann segir að viðskipta­vinir hafi ekki látið sér bregða í brún við að sjá þennan höfuð­búnað og segist ekki þekkja til þess að hjálmar sem þessir séu notaðir við aðra starfsemi eða í öðrum verslunum en Lyfju. Vel megi hugsa sér að rakarar, hárgreiðslu­fólk og aðrir, sem starfa í mikilli nálægð við viðskipta­vini sína, noti hjálma sem þessa þegar slík starfsemi verður opnuð eftir helgi.

„Þetta hindar reyndar svolítið samskiptin. Fólk heyrir síður í okkur, einkum eldra fók. En þá verðum við bara að brýna raustina vel“

Alfreð segir óvíst hvort  búast megi við hjálmum á höfðum starfs­fólks Lyfju eftir að samkomu­bannið verður rýmkað 4. maí. „Það verður bara metið á hverjum tíma fyrir sig. Tímarnir eru svo breyti­legir núna frá degi til dags. En ég reikna með að við notum þetta eitthvað áfram.“

Venst þetta vel? „Já, það gerir það.“

Hömstruðu hitamæla

COVID-19 faraldurinn hefur sett tals­verðan svip á vöruúrval og vinsældir einstakra vöru­tegunda í apótekum. Í Lyfju í Hafnar­stræti hafa hitamælar og hand­spritt rokið úr hillunum undan­farnar vikur, eins og víða annars staðar, og náði salan hápunkti í lok mars og byrjun apríl. Heldur er farið að hægja á sölu þessa varnings nú, þegar hillir undir afléttingu ýmissa takmarkana.

 „Fólk keypti hand­spritt í lítravís, það fóru margir að hamstra þegar fór að spyrjast út að það væri lítið til á markaðnum og það seldist upp hjá okkur um tíma,“ segir Alfreð.  „Þá þurftum við að skammta fólki spritt og hver og einn mátti bara kaupa eina flösku. Það hefur reyndar hægt á sölunni undan­farið.“

LyfsaliAlfreð Ómar Ísaksson lyf­sali í Lyfju Hafn­ar­stræti segir að starfs­fólk hafi verið jákvætt gagn­vart því að bera hjálm­ana. „Þetta hindar svo­lítið sam­skiptin. Fólk heyrir síður í okkur, einkum eldra fók. En þá verðum við bara að brýna raustina vel,“ segir Alfreð

Hann segir að líklega hafi verið slegið met í sölu hitamæla. „Þeir seldust upp hjá okkur eftir að fólki var ráðlagt að fylgjast með líkams­hitanum. Reyndar held ég að fyrir um tveimur til þremur vikum hafi þeir verið nánast ófáanlegir í landinu, en núna eru þeir komnir aftur,“ segir Alfreð.

Þótti kaup ferðamanna á spritti og grímum sérstök

„Í janúar og febrúar kom hingað mikið af kínverskum ferða­mönnum sem keyptu mikið af hand­spritti, hitamælum og andlits­grímum. Og ferðamenn frá fleiri löndum, sérstak­lega Bretar, keyptu líka miklar birgðir,“ segir Thelma Björk Kristins­dóttir lyfja­tæknir í Lyfju Hafnar­stræti. 

„Enda var þetta nánast ófáanlegt í mörgum löndum um tíma,“ bætir Alfreð við. „Okkur fannst þetta sérstakt, við áttuðum okkur auðvitað ekki á því þá hver staðan yrði hjá okkur bara örfáum vikum síðar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár