Svíar sigruðu Eurovision söngvakeppnina eftir spennandi stigagjöf

Framlag Svía, lagið Heroes í flutningi Måns Zelmerlöw, varð hlut­skarpast á úrslita­kvöldi Eurovision sem fram fór í Vínarborg í kvöld. Ekki er hægt að segja að úrslitin hafi komið mikið á óvart, en helstu veðbankar heims höfðu spáð Svíum sigri í söngva­keppninni. Svíar enduðu með 365 stig eða 62 stigum meira en Rússar sem urðu í öðru sæti.

Annars fóru úrslitin eins og veðbankarnir höfðu spáð. Rússar enduðu í öðru sæti og Ítalir því þriðja.

Stiga­gjöfin var æsispennandi nánast frá byrjun. Ítalir smelltu sér í fyrsta sætið skamma stund í upphafi, en síðan seig Rússland framúr og náði nokkru forskoti og allt stefndi í um tíma að lagið A Million Voices í flutningi Polina Gagarina myndi sigra. Þá sóttu Svíar í sig veðrið, söxuðu jafnt og þétt á forskot Rússa, náðu fyrsta sætinu og slepptu ekki úr greipum sér eftir það.

Hér má sjá flutning sigur­lagsins á úrslita­kvöldi Eurovision í kvöld.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár