Uppljóstraði um myglu í einkareknum leikskóla og hætti svo störfum

Starfs­maður leikskóla þurfti sjálf að greiða fyrir myglupróf. Hún lét af störfum vegna seinagangs stjórn­enda fyrir­tækisins sem rekur leik­skólann.

Margrét Sævarsdóttir
Margrét Sæv­ars­dóttir Barðist við að fá myglu stað­festa og gerði for­eldrum við­vart. Mynd: Heiða Helgadóttir

Foreldrum á einka­rekna heilsu­leik­skólanum Kór var ekki tilkynnt um það þegar mygla fannst þar fyrr á árinu. Mörg börn voru með mikil einkenni, samkvæmt foreldrum sem Stundin ræddi við. Þá fundu starfs­menn einnig fyrir einkennum vegna myglunnar. Kennari við leik­skólann ákvað að taka málið í sínar hendur með því að gera sjálf myglu­prófanir, á sinn eigin kostnað, þar sem stjórn­endur og eigendur skólans hunsuðu ítrekað beiðni hennar um að skoða málin. Veikinda­dagar barna og starfs­fólks var óeðlilega hátt, að sögn leik­skóla­kennara sem starfaði á heilsu­leik­skólanum Kór, sem er í eigu Skóla ehf. Skólar ehf. reka fimm leikskóla víða um land.

Margrét Sævars­dóttir hóf störf hjá Heilsu­leik­skólanum Kór í desember 2018. Margrét er menntaður kennari og hefur starfað sem slíkur í um 20 ár. Á sínum fyrsta starfs­degi segir Margrét að leik­skóla­stjórinn hafi farið hörðum orðum um það að almennileg veikindi séu minnst nokkrir dagar, jafnvel vika. „Hún hélt …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár