Grísk stjórnvöld hafa tekið ákvörðun...um að banna fótbolta

Stjórn­völd í Grikk­landi, með Syriza flokkinn í broddi fylkingar, ákváðu í dag að banna atvinnu­manna­fótbolta í Grikk­landi vegna síendurtekinna óláta á fótbolta­leikjum í landinu, þar sem bullur hafa vaðið uppi með ofbeldi og skemmdar­verkum.

Upp úr sauð á leik tveggja af stærstu knattspyrnu­félögum Grikk­lands, Panathinaikos og Olympíakos, síðastliðinn sunnudag og blönduðust bæði knattspyrnu­stjórar og stjórnar­menn félaganna í deilur fyrir og eftir leik.

Stjórn­völd í Grikk­landi hafa í nokkur skipti reynt að stöðva ólæti á fótbolta­leikjum, meðal annars í tvígang í vetur, með tíma­bundnum bönnum og peninga­sektum. Fyrst í september og síðan í nóvember.

Ný ríkis­stjórn, sem Syriza hefur leitt frá því eftir kosningar í síðasta mánuði, hét því að taka þetta mál föstum tökum, og óhætt er að segja að hún geri það. Samkvæmt frétt breska ríkis­útvarpsins BBC um málið er allt óvíst hvenær atvinnu­manna­fótbolti í landinu fer aftur af stað, en bannið nær til þriggja efstu deilda í landinu.

Talið er líklegt að laga­setning, sem á að hemja ólætin, sé í bígerð og að atvinnu­manna­fótbolti muni hefjast aftur innan tíðar. Viðmælandi BBC lýsir miklum efasemdum um þessar ákvarðanir stjórn­valda og segir að þetta muni engu breyta. Ólæti á fótbolta­leikjum í Grikk­landi eigi sér 30 til 40 ára sögu, og nær útilokað sé að koma í veg fyrir þau með pólitískum aðgerðum og laga­setningu.

https://www.youtube.com/watch?v=TP1i6knkSFc

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár