Breskir bankar rannsaka peningaþvætti FIFA

Barclays og Standard Chartered bankarnir í Bretlandi hafa hafið rannsókn á tengslum sínum við Alþjóða­knattspyrnu­sambandið, FIFA, eftir ákærur á hendur hátt­settum mönnum innan sambandsins.

Bandaríska alríkis­lögreglan hefur ákært fjórtán einstaklinga vegna spillingar, mútuþægni og peningaþvættis í tengslum við FIFA. Komið hefur fram hjá lögreglunni að Barclays og Standard Chartered, sem og HSBC bankinn, hafi verið notaðir í peninga­þvættið.

Breska ríkis­útvarpið BBC greinir frá því að bæði Barclays og Standard Chartered hafi hafið rann­sóknir á málinu, en aðeins sá síðarnefndi hefur staðfest það. HSBC-bankinn hefur ekki tjáð sig um málið.

Fleiri bankar voru nefndir í 164 blaðsíðna ákæru­skjölunum gegn FIFA-mönnunum. Bankarnir eru ekki sakaðir um að hafa gert nokkuð rangt, aðeins notaðir til sönnunar á ólöglegum greiðslum.

BBC segir þó víst að þessir þrír bresku bankar muni allir rannsaka málið vel, ekki síst vegna þess ða bæði HSBC og Standard Chartered hafa á undan­förnum árum greitt bandarískum yfir­völdum háar upphæðir vegna þess að þeir hafa leyft peninga­þvætti eða greiðslur sem fara framhjá viðskipta­þvingunum sem Banda­ríkin hafa sett. Barclays er einnig með langan lista sektar­greiðslna sem bankinn þarf að greiða vegna ýmissa mála.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár