Lars Christensen: Tímabært að endurmeta traustið á dollaranum

„Við getum einfald­lega ekki lengur treyst því að Banda­ríkin fari eftir reglunum,“ skrifar danski hagfræð­ing­urinn Lars Christensen og spyr hvort yfir höfuð sé forsvar­an­legt að treysta því fjármála- og efnahags­kerfi sem byggir á þeirri heim­skipan sem við höfum vanist.

Gagnrýnislaust
Gagn­rýn­is­laust Christensen segir að þegar horft er á við­bragðs­leysi banda­rískra stofn­anna og almenn­ings „verðum við öll að álykta að Banda­ríkin sætti sig við þessa hegðun“. Mynd: AFP

Danski hagfræðingurinn Lars Christensen segir að alþjóða­samfélagið verði að horfast í augu við þá staðreynd að vandinn í samskiptum við Banda­ríkin sé ekki aðeins Donald Trump heldur bandarískt samfélag og stofnana­kerfi í heild. Þetta kemur fram í pistli sem Christensen skrifar á Facebook, þar sem hann varar við því að traust á Banda­ríkjunum, dollaranum og alþjóð­legu fjármála­kerfi sé að hrynja.

Christensen bendir á að þegar umheimurinn fylgist með „geðveikislegri hegðun Trumps og hótunum hans í garð banda­manna“ án þess að raun­veruleg viðbrögð komi frá bandarískum almenningi, þinginu, Hæstarétti eða fjöl­miðlum, verði niður­staðan einföld: „Verðum við öll að álykta að Banda­ríkin sætti sig við þessa hegðun.“

Í pistlinum segir hann að bandarískur almenningur virðist telja að landið eigi rétt á sérstöðu þar sem reglur og viðmið gildi ekki með sama hætti og annars staðar. Afleiðingin sé sú að Banda­ríkin hafi í reynd svikið þá alþjóð­legu skipan sem þau …

Kjósa
48
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár