Segir þjóðaratkvæði ekki í hag eða anda Sjálfstæðisflokksins

Það væri ekki í hag Sjálfstæðis­flokksins og ekki í anda stefnu flokksins ef hann myndi samþykkja að farið verði í þjóðar­atkvæða­greiðslu um Evrópu­sambandið. Þetta segir Gunnlaugur Snær Ólafsson, formaður utan­ríkismála­nefndar Sjálfstæðis­flokksins við mbl.is. Afstaða flokks­manna og kjósenda hans „hefur alfarið verið á þá leið að þeir hafa engan áhuga á þessu.“

Í morgun var sagt frá því í Frétta­blaðinu að búið væri að ná samkomu­lagi um þjóðar­atkvæða­greiðslu um ESB milli Sjálfstæðis­flokks, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar. Slík þjóðar­atkvæða­greiðsla myndi fara fram á kjör­tímabilinu. Greint hefur verið frá því að til standi að láta þingið taka ákvörðun um þjóðar­atkvæða­greiðsluna og að það verði sett í stjórnar­sáttmála að væntanlegir ríkis­stjórnar­flokkar gengju óbundnir til þeirrar ákvörðunar.

Bæði Benedikt Jóhannesson, formaður Viðreisnar, og Óttarr Proppé, formaður Bjartrar framtíðar, hafa sagt í dag að ekki sé allt rétt sem komið hafi fram í fréttum. „Mér sýnist að blöðin hafi verið duglegri um helgina að fá fréttir heldur en ég,“ sagði Óttarr á RÚV í morgun aðspurður hvort samkomulag hefði náðst um að þjóðar­atkvæða­greiðsla yrði haldin um aðildar­viðræður við Evrópu­sambandið. Benedikt sagði við mbl.is í morgun að það væri „margt nýtt sem maður lærir með því að lesa blöðin.“

Gunnlaugur Snær segir að ef þessar fréttir skyldu vera réttar hafi það í för með sér vandamál, ekki bara fyrir Sjálfstæðis­flokkinn heldur líka mögulegt ríkis­stjórnar­samstarf. Það hafi verið ályktað skýrt um málið á lands­fundi Sjálfstæðis­flokksins að hann myndi eingöngu krefjast þjóðar­atkvæða­greiðslu ef það ætti að sækja um aðild að nýju. „Sjálf­stæðis­flokk­ur­inn ætlaði ekki að hafa frum­kvæði að því að sækja um að nýju því hann er and­snú­inn því að ganga í Evr­ópu­sam­bandið. Þetta er ákveðin mót­sögn ef slík at­kvæða­greiðsla ætti sér stað. Segj­um sem svo að það yrði kosið snemma á kjör­tíma­bil­inu eða á því miðju; ætl­ar for­ysta Sjálf­stæðis­flokks­ins út í kosn­inga­bar­áttu gegn því að þetta verði samþykkt á meðan for­ystu­menn annarra rík­is­stjórn­ar­flokka væru hugs­an­lega að berj­ast með álykt­un­inni?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár