Flugstjórinn: „Í guðanna bænum, opnaðu hurðina!“

Flug­stjórinn í flugvél Germanwings sem aðstoðar­flug­maðurinn Andreas Lubitz flaug að öllum líkindum vísvitandi inn í frönsku alpanna, á meðan flug­stjórinn brá sér frá úr flug­stjórnar­klefanum, grátbað Lubitz um að opna hurðina, á sama tíma og hann reyndi með öllum ráðum að brjóta hana niður, síðast með exi. „Í guðanna bænum, opnaðu hurðina!“ sagði hann, í örvæntingu. Þetta kemur fram í þýska blaðinu Bild í dag, en rannsókn á upplýsingum sem flugritar vélarinnar geymdu benda eindregið til þess Lubitz hafi stýrt vélinni inn í fjall­garðinn, með þeim afleiðingum að allir um borð, 150 manns, létu lífið.

Fram hefur komið að Lubitz glímdi við geðveiki og hélt veikindum sínum leyndum fyrir forsvars­mönnum Germanwings. Kærasta hans fyrr­verandi, sagði í viðtal við Bild í gær, undir nafnleynd, að hegðun Lubitz hefði verið undarleg og hann hefði verið uppstökkur. Átt það til að vakna öskrandi um nætur, og einnig læst sig inn á klósetti ef hann hefði verið ósáttur við eitthvað.

Við leit heima hjá Lubitz í vikunni fundust meðal annars geðlyf, sem þykir renna stoðum undir það, að hann hafi verið illa haldinn af þunglyndi og geðveiki, án þess að nokkur hafi vitað af því.

Lufthansa, móður­félag, Germanwings, hefur þegar tilkynnt um að það muni greiða 50 þúsund evrur, jafnvirði um 7,5 milljóna króna, til aðstand­enda hvers farþega í fluginu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár