Gömlu erkifjendurnir Apple og Microsoft verðmætustu vörumerkin

Tölvu­risarnir Apple og Microsoft eru tvö verð­mætustu vörumerki (Brand) í heimi, samkvæmt lista Forbes. Vörumerki Apple er verðmetið á 145,3 milljarða Bandaríkja­dala, eða sem nemur tæplega nítján þúsund milljörðum. Á eftir Apple kemur Microsoft en virði þess er metið á 69,3 milljarða Bandaríkja­dala, eða sem nemur um níu þúsund milljörðum.

Skammt á eftir Microsoft kemur Google með 65,6 milljarða Bandaríkja­dala, eða sem nemur 8.500 milljörðum króna. Hið rótgróna vörumerki Coca Cola kemur síðan næst þar á eftir, með 56 milljarða Bandaríkja­dala, um 7.200 milljörðum króna, og annar tölvurisi, IBM, er síðan í fimmta sæti en virði þess vöru­merkis er áætlað 49,8 milljarðar Bandaríkja­dala, um 6.400 milljarðar króna.

Til saman­burðar má nefna, þá nam árleg lands­framleiðsla Íslands rúmlega 1.900 milljörðum króna í fyrra. Virði vöru­merkis Apple, samkvæmt mati Forbes, nemur því um tífaldri árlegri lands­framleiðslu Íslands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár