Vanity Fair: Bankamenn semja sig frá lögsóknum í New York

Eitt virtasta tímarit heimsins, Vanity Fair, gagnrýnir helstu bankamenn Banda­ríkjanna, einkum þá sem voru við stjórnvölinn haustið í fjármála­kreppunni, harðlega í nýjasta tölu­blaðinu. Er þar fjallað ítarlega um fjárhags­stöðu þeirra sem voru við stjórnvölinn þegar fjármála­fyrirtækin sem þeir stýrðu voru þjóðnýtt eða þau keyrð í kaf.

Fram kemur í ítarlegri úttekt blaðsins, að stjórn­endur hjá bönkunum Bear Sterns, JP Morgan Chase, Lehman Brothers og Bank of America hafi gengið út með meira en 150 milljónir Bandaríkja­dala, eða sem nemur rúmlega tuttugu milljörðum króna. Þeir lifi flestir í vellystingum í dag, og hafa samið við saksóknara um að sátta­greiðslur í stað þess að verða saksóttir. Er tekið dæmi af Stan O'neal, fyrr­verandi forstjóra Merril Lynch, en hann samdi við saksókn­arann í New York um að hann mætti ekki starfa hjá félagi sem skráð væri á markað í þrjú ár, og greiddi síðan sátta­greiðslu, og var fyrir vikið laus allra mála.

Í umfjöllun blaðsins, undir fyrir­sögninni The Wrecking Crew, kemur fram að flestir fyrr­verandi stjórn­endur bankanna haldi sig alveg frá sviðs­ljósinu, en lifi hátt. Enda með fulla vasa fjár.

Ritstjóri blaðsins, Graydon Carter, gagnrýnir þetta harðlega og spyr hvernig standi á því að enginn af þeim banka­mönnum sem stýrðu fjármála­fyrirtækjum í kaf og brutu gegn lögum hafi verið lögsóttir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár