Innlendir aðilar áttu 676 milljarða í útlöndum um síðustu áramót

Alls er 56 prósent af fjármuna­eign innlendra aðila erlendis í Hollandi, og megnið af þeim eignum er í eignarhalds­félögum. Eigið fé Íslendinga erlendis jókst um 37,5 milljarða króna á árinu 2021.

Þeir fjármunir sem Íslendingar hafa flutt erlendis drógust saman á síðasta ári.
Þeir fjár­munir sem Íslend­ingar hafa flutt erlendis dróg­ust saman á síð­asta ári. Mynd: Bára Huld Beck

Bein fjármuna­eign Íslendinga erlendis dróst saman um tæpa sjö milljarða króna á síðasta ári og var 675,6 milljarðar króna. Það er í fyrsta sinn síðan að höftum var aflétt árið 2017 sem fjármuna­eign innlendra aðila erlendis dregst saman milli ára. Frá lokum þess árs hefur hún þó aukist um 125,5 milljarða króna. Þetta kemur fram í nýbirtum hagtölum Seðla­banka Íslands.

Að uppi­stöðu er um eigið fé að ræða, alls 563,1 millj­arðar króna, en útistand­andi lán inn­lendra aðila til erlendra eru 112,5 millj­arðar króna. Því var 83,3 prósent af eignum Íslendinga erlendis eigið fé og sá stabbi stækkaði um 37,5 milljarða króna á síðasta ári. Á móti lækkuðu útistandandi lán innlendra aðila til erlendra um 44,5 milljarða króna. Ekki er óvar­legt að ætla að hluti þeirra lána hið minnsta sé milli tengdra aðila.

Mestar eru eign­irnar sem tengdar eru fjár­mála­starf­semi, alls 311 millj­arðar króna.

Bein fjár­muna­eign inn­lendra aðila erlendis er óra­fjarri því sem hún var árið 2007, en þá áttu Íslend­ingar upp­gefið 1.554 millj­arða króna utan land­stein­anna. Umfang fjár­muna­eignar Íslend­inga erlendis um síð­ustu ára­mót var því 43,4 pró­sent af þeirri upp­hæð.

Fjár­muna­eignin óx tíma­bundið eftir banka­hrun, aðal­lega vegna erlendra eigna þrota­búa föllnu bank­anna, hafta á Íslandi sem komu í veg fyrir að kröfu­hafar þeirra greiddu sér þær eignir út og veikrar krónu gagn­vart helstu við­skipta­mynt­um. Í árs­lok 2012 stór beina fjár­muna­eign inn­lendra aðila erlendis í 1.587 millj­örðum króna. Um helm­ingur þeirra eigna var vegna fjár­mála­starf­semi.

Mest í Hollandi

Mestar eru upp­­­­­gefnar fjármuna­eignir Íslend­inga í Hollandi, en þar eiga inn­­­­­lendir aðilar alls tæp­lega 379 millj­­­arða króna. Þær drógust saman um 17,5 millj­arða króna á síð­asta ári. Megnið af því fé er í eign­ar­halds­fé­lögum sam­kvæmt sam­an­tekt Seðla­banka Íslands.

Upp­­­gefnar eignir lands­­­manna á þekktum aflands­eyjum hafa dreg­ist mikið saman á und­an­­­förnum árum. Þannig er fjár­­­muna­­­eign inn­­­­­lendra aðila á Bresku Jóm­frú­­­areyj­un­um, sem inn­­i­heldur með ann­­­ars Tortóla, sögð vera krónur núll, sem er 22 milljónum krónum minna en Íslendingar áttu þar í árslok 2020. Í árs­­­lok 2015 voru 32 millj­­­arðar króna í eigu Íslend­inga sagðir vera vistaðir í eyja­kla­s­an­­­um.

Sá hluti fjár­­­muna Íslend­inga erlendis sem eru óflokk­aðir hefur marg­fald­ast á nokkrum árum. Í lok árs 2017 var hann met­inn á tæpa 25 millj­­arða króna en um síð­­­ustu ára­­mót var sú upp­­hæð komin upp í 83,1 millj­­arða króna.

Gengi krónu skiptir miklu máli

Eignir Íslend­ingar í krónum talið lækk­­uðu skarpt í útlöndum frá árunum 2016 og 2017. Þar spil­aði mikil styrk­ing íslensku krón­unnar stóra rullu. Í lok árs 2017 hafði fjár­­muna­­eign inn­­­lendra aðila í krónum talið ekki verið lægri frá árinu 2004.

Síð­­­ustu ára hefur þetta breyst og á tveggja ára tíma­bili, frá lokum árs 2017 og fram til lok árs 2019, juk­ust eign­­irnar í krónum talið um 97,3 millj­­arða króna. Það gerð­ist á sama tíma og íslenska krónan veikt­ist umtals­vert, og jók þannig krón­u­virði helstu við­­skipta­gjald­miðla.

Krónan veikt­ist skarpt árinu 2020 og hver evra kost­aði 14,9 pró­sent meira í lok þess árs en í byrjun. Í fyrra styrkist hún hins vegar um 2,4 prósent miðað við þróun á gengis­vísitölunni.

Skrán­ingu á erlendri fjár­­­­­muna­­­­­eign Íslend­inga var breytt fyr­ir­ nokkrum árum síð­­­­­­­­­an. Nú eru gefnar upp­­­­­lýs­ingar um eign í færri löndum en áður en ­flokk­­­­­ur­inn „óflokk­að“ hefur stækk­­­­­að. Áður var hægt að sjá til að mynda hver bein fjár­­­­­muna­­­­­eign Íslend­inga er á Cayman-eyj­um, Mön, Jersey, Guernsey og Má­ri­­­­­tí­us. Það er ekki hægt leng­­­­­ur.

Líkt og áður sagði var „óflokk­uð“ bein fjár­­muna­­eign Íslend­inga rúm­­lega 83,1 millj­­arðar króna í lok árs 2021.

Íslendingar voru stórtækir í eignarhaldi á aflandsfélögum

Erlend fjár­­­­muna­­­­eign Íslend­inga var mjög í kast­­­­ljósi heims­ins vorið 2016 í kjöl­far frétta úr gagna­­­­leka frá panömsku lög­­­­fræð­i­­­­stof­unni Mossack Fonseca sem gerður var opin­ber í apríl 2016.

Í þeim kom fram að um 600 Íslend­ingar teng­d­ust um 800 aflands­­­­fé­lögum sem koma fram í skjöl­un­­­­um. Fyrir liggur að mestu er um að ræða við­­­­skipta­vini Lands­­­­banka Íslands sem stund­uðu aflands­við­­­­skipti. Ekki liggur fyrir hvaða milli­­­­­­­göng­u­liði Kaup­­­­þing og Glitnir not­uðu, en sam­­­­kvæmt við­­­­mæl­endum Kjarn­ans sem þekktu vel til í starf­­­­semi íslensku bank­anna fyrir hrun er ljóst að fjöldi aflands­­­­fé­laga sem stofnuð voru fyrir íslenska við­­­­skipta­vini eru mörg þús­und tals­ins. Því sýndi lek­inn frá Mossack Fonseca ekki nema brot af þeim aflands­­fé­lögum sem þeir áttu, og eiga mög­u­­lega enn. Enn sem komið er hafa ekki komið fram upp­lýs­ingar um Íslend­inga í nýjum leka, hinum svoköll­uðu Pandora-skjöl­um, en sam­starfs­að­ilar alþjóða­sam­taka rann­sókn­ar­blaða­manna (ICIJ) hér­lend­is, Reykjavik Media og Stund­in, hafa boðað birt­ingu úr þeim gögnum á föstu­dag.

Lík­­­legt verður að teljast, að hluti þeirra eigna sem íslenskir rík­­­is­­­borg­­­arar hafa komið fyrir í þekktum skatta­­­skjól­um, séu ekki inni í þeim tölum yfir erlendar fjármuna­eignir inn­­­­­lendra aðila sem Seðla­­­bank­inn birt­­­ir. Til­­­­­gangur þess að stofna félag í skatta­­­skjóli er enda fyrst og síð­­­­­ast tal­inn annar af tveim­­­ur: að kom­­­ast undan skatt­greiðslum eða til að leyna til­­­vist eignar frá ein­hverj­­­um.

Haustið 2019 hafði emb­ætti skatt­rann­­sókn­­ar­­stjóra, sem er ekki lengur til sem sjálf­stæð stofn­un, lokið rann­­sókn í alls 96 málum sem eiga upp­­runa sinn í Pana­ma­skjöl­un­­um. Af þeim höfðu alls 64 málum verið vísað til refsi­­með­­­ferðar hjá hér­­aðs­sak­­sókn­­ara, farið hafði verið fram á sekt­­ar­­kröfu fyrir yfir­­skatta­­nefnd í 17 mál­um, refsi­­með­­­ferð í tveimur málum var lokið með sekt­­ar­­gerð hjá skatt­rann­­sókn­­ar­­stjóra og ekki var hlut­­ast til um refsi­­með­­­ferð í 13 mál­u­m.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár