Forvarnargjaldið gæti verið notað í önnur verkefni en í varnargarða

Tekjur rík­is­sjóðs vegna nýs tíma­bund­ins skatts sem lagður er á fast­eigna­eig­endur til að fjár­magna varn­ar­garða í Svarts­engi geta nýst í önnur verk­efni. Í svari for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins segir að útgjöld rík­is­ins vegna „jarð­hrær­inga og mögu­legra eldsum­brota verða umtals­vert meiri en sem nemur kostn­aði við varn­ar­garð­inn“.

Verja innviði
Verja inn­viði Vinna við gerð varn­ar­garða við Svarts­engi hefur staðið yfir linnu­laust frá því að frum­varp um fjár­mögnun þeirra var sam­þykkt á Alþingi 13. nóv­em­ber. Mynd: Golli

Mark­miðið með því að leggja svo­kallað for­varn­ar­gjald á alla lands­menn sem eiga fast­eignir í þrjú ár er að standa undir kostn­aði vegna for­varn­ar­að­gerða á Reykja­nesi. Þar sem mikil óvissa sé uppi um fram­gang eldsum­brot­anna við Grinda­vík sé úti­lokað að gera nákvæmar áætl­anir fyrir fram um mögu­leg útgjöld rík­is­ins vegna máls­ins.

Þetta kemur fram í svari for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Heim­ild­ar­innar um ráð­stöfun þess fjár sem afla á með því að leggja for­varn­ar­gjaldið á íslenska fast­eigna­eig­endur. 

Aðspurt hvort það liggi ljóst fyrir að þeim fjár­munum sem aflað verður með álagn­ingu skatts­ins verði ekki ráð­stafað í önnur verk­efni rík­is­sjóðs en að verja mik­il­væga inn­viði á Reykja­nesskaga, segir ráðu­neytið að gjald­takan sé ekki mark­aður tekju­stofn enda voru þeir aflagðir með lögum um breyt­ingu á ýmsum laga­á­kvæðum árið 2018. „Ljóst er að útgjöld rík­is­sjóðs vegna jarð­hrær­inga og mögu­legra eldsum­brota verða umtals­vert meiri en sem nemur kostn­aði við varn­ar­garð­inn.“

Frum­varpi um álagn­ingu for­varn­ar­gjalds …

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðhræringar við Grindavík

FréttirJarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næt­ur­langt í Grinda­vík þótt lög­reglan mæli ekki með því

Frá og með morg­un­deg­inum verður íbúum og fólki sem starfar hjá fyr­ir­tækjum í Grinda­vík heim­ilt að fara í bæinn og dvelja þar næt­ur­langt. Í nýlegri frétta­til­kynn­ingu lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum er greint frá þessu. Íbúar eru þó varaðir við að inn­viðir bæj­ar­ins séu í lama­sessi og sprungur víða. Bærinn sé því ekki ákjós­an­legur staður fyrir fjöl­skyldur og börn.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár