Hvað finnst þér um einkavæðingu Íslandsbanka?

Stærsta frumútboð hluta­bréfa í Íslands­sögunni átti sér stað þegar ríkið seldi 35% hlut í Íslands­banka.

„Er það ekki það sem þarf að koma? Ég vil bara ekki að Sjálfstæðis­flokkurinn stjórni því, því miður. Hann hyglir alltaf sínum, það er venjan hjá honum. Hann hefur alltaf gert það og mun alltaf gera það. Sjáðu hvernig hann stjórnar sjávar­útveginum með sínum vinum og vanda­mönnum. Við keyptum ekki hlutabréf í Íslands­banka, hvaðan eigum við að hafa peningana?“ 

Sigmundur Baldursson og Arnfríður Eysteins­dóttir

„Gæti verið betra. Það er alltaf eitthvað hjá þeim, annaðhvort breyting eða allt í rugli hjá þeim. Ég keypti ekki hlutabréf í honum. Þetta er ekki eitthvað sem ég er búin að vera að spá í. Ég sé ekki mikinn tilgang í því að kaupa hlutabréf.“

Guðný Þóra Karls­dóttir

„Ég er ekki viss, ég er ný í þessu.“

Mána Hjörleifs­dóttir Taylor

…
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár