Sækja hesta til Grindavíkur

Íbúar í Þór­kötlu­staða­hverfi í Grinda­vík fengu heim­ild almanna­varna til að fara inn á lokað svæði til að sækja gælu­dýr og ómissandi eigur. Um leið er sér­stök aðgerð í gangi til að sækja alla hesta í hesta­hverf­inu norðan við Aust­ur­ver.

Íbúar í Þór­kötlu­staða­hverfi í Grinda­vík fengu heim­ild almanna­varna til að fara inn á lokað svæði til að sækja gælu­dýr og ómissandi eigur. Hverfið sem um ræðir stendur aust­ast í Grinda­vík, en þar eru innan við tutt­ugu heim­ili. 

Samhliða því er sér­stök aðgerð í gangi til að sækja alla hesta í hesta­hverf­inu norðan við Aust­ur­ver. Á vett­vangi má sjá jeppa með hesta­kerrur aka inn í hverfið í fylgd björg­un­ar­sveita og lög­reglu. Sér­sveitin er einnig á vett­vangi. 

Þyrla Land­helg­is­gæsl­unnar er í við­bragðs­stöðu á Kefla­vík­ur­flug­velli. 

Röð bið­reiða bíður við lok­un­ar­póst­inn. Almanna­varnir árétta mik­il­vægi þess að fólk fari ekki af stað í átt til Grinda­víkur og safn­ist fyrir á lok­un­ar­póstum. Íbúum ann­arra hverfa verður ekki hleypt inn að svo stöddu. „Ekki liggur fyrir hvort eða hvenær mögu­legt verður að fara í sams­konar leið­angra í önnur hverfi. Þór­kötlu­svæðið er innan lok­un­ar­svæðis en utan rým­ing­ar­svæðis,“ segir í til­kynn­ingu frá Almanna­vörnum. 

Fólki …

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðhræringar við Grindavík

FréttirJarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næt­ur­langt í Grinda­vík þótt lög­reglan mæli ekki með því

Frá og með morg­un­deg­inum verður íbúum og fólki sem starfar hjá fyr­ir­tækjum í Grinda­vík heim­ilt að fara í bæinn og dvelja þar næt­ur­langt. Í nýlegri frétta­til­kynn­ingu lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum er greint frá þessu. Íbúar eru þó varaðir við að inn­viðir bæj­ar­ins séu í lama­sessi og sprungur víða. Bærinn sé því ekki ákjós­an­legur staður fyrir fjöl­skyldur og börn.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár