Banksy smyglaði sér til Gaza og gerði listaverk í rústum

Lista­maðurinn Banksy hefur sent frá sér myndband sem sýnir frá ferð hans til Gaza í Palestínu. Í mynd­bandinu má sjá listaverk sem hann gerði á svæðinu, auk þess sem mynd­bandið sýnir þá gríðar­legu eyði­leggingu sem þar blasir við, ekki síst eftir loft­árásir Ísraela síðastliðið sumar. Í þeim eyði­lögðust átján þúsund heimili, og Sameinuðu þjóðirnar segja að yfir hundrað þúsund einstaklingar séu enn heimilis­lausir.

Banksy hefur áður farið á svæðið og gerði meðal annars fjölda lista­verka á aðskilnaðar­múrinn á Vestur­bakkanum. Hér má sjá þau.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár