Menningarviðburðir sendir út á Stundinni

Menningar­húsin í Kópavogi halda viðburði á meðan samkomu­banni stendur, sem sendir verða út á Stundinni. Sævar Helgi Bragason stjörnu­fræðingur, Gerður Kristný skáld, Jógvan, Matti Matt, Vignir Snær og Andri Snær Magnason rithöfundur eru á meðal þeirra sem koma fram. Fyrsti viðburðurinn er í dag.

Stundin mun á næstu vikum senda út menningar­viðburði í samstarfi við Menningar­húsin í Kópavogi. Viðburðirnir verða haldnir klukkan 13 á mánudögum, miðvikudögum og föstu­dögum á meðan samkomu­banni stendur vegna COVID-19 heims­faraldursins. Hægt verður að sjá viðburðina á forsíðu Stundarinnar, á Facebook-síðu Stundarinnar og Facebook-síðu Menningar­húsanna í Kópavogi.

Meðal þeirra sem koma fram í viðburða­röðinni eru Sævar Helgi Bragason stjörnu­fræðingur, Gerður Kristný skáld,  Jógvan, Matti Matt, Vignir Snær, Ragna Fróða­dóttir, Andri Snær Magnason rithöfundur, Sigur­björn Bernharðsson, Halla Oddný, Þorgrímur Þráinsson, Elín Björk Jónasdóttir, Einar Falur, Kordo kvartettinn og Hrönn Egils­dóttir.

Fyrsti viðburðurinn í Kúltúr klukkan 13 eru tónleikar með Jógvan Hansen, Matthíasi Matthíassyni og Vigni Snæ Vigfússyni, í dag klukkan 13. Streymi af viðburðunum verður birt í þessari frétt og á fyrr­greindum Facebook-síðum ásamt forsíðu Stundarinnar. Þá verður upptaka tiltæk á sömu stöðum í kjölfarið.

Eftir­farandi er tilkynning frá menningar­húsunum í Kópavogi um fyrsta viðburðinn:

Fyrsti viðburðurinn í röðinni Kúltúr klukkan 13

Nokkur af bestu lögum Eagles í Salnum

Fyrsti viðburðurinn í Kúltúr klukkan 13, nýjum vef-dagskrárlið Menningar­húsanna í Kópavogi, eru tónleikar með þeim Jógvan Hansen, Matthíasi Matthíassyni og Vigni Snæ Vigfússyni. Þeir félagar mæta í Salinn í Kópavogi og flytja nokkur af bestu lögum Eagles.

Hljóm­sveitina Eagles þekkja allir enda hefur hún boðið heims­byggðina upp á fjöldan allan af þekktum lögum sem hafa verið mikið spiluð í gegnum árin. Má þá nefna lög á borð við Hotel California, Take it easy, Lying Eyes, Tequila Sunrise o.fl.

Jógvan, Matti og Vignir slógu í gegn á tvennum Eagles tónleikum í vetur fyrir frábæran flutning og skemmtilega kvöld­stund í Salnum og eru þeir spenntir fyrir því að geta boðið lands­mönnum upp á þessa fallegu tónlist Eagles -  beint heim í stofu!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kúltúr klukkan 13

MenningKúltúr klukkan 13

Gerðar­Stundin klukkan 13: Mósaík úr matvælum

Stund­in send­ir út menn­ing­ar­við­burði á veg­um Menn­ing­ar­hús­anna í Kópa­vogi á með­an samkomu­banni stend­ur. Í dag verð­ur þriðja Gerð­ar­Stund­in send út frá Gerð­arsafni þar sem mynd­list­ar­menn­irn­ir Berg­ur Thom­as And­er­son, Logi Leó Gunn­ars­son og Una Mar­grét Árna­dótt­ir leiða skap­andi fjöl­skyldu­smiðju í Stúd­íói Gerð­ar. Út­send­ing­in hefst klukk­an 13.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár