Toyota hagnast verulega - Blikur á lofti í Kína

Japanski bíla­fram­leiðandinn Toyota hagnaðist um 9,1 milljarða Bandaríkja­dala, jafnvirði tæplega 1.300 milljarða króna, á fyrsta ársfjórðungi samkvæmt uppgjöri sem kynnt var í dag. Í uppgjörinu segir að markaðs­aðstæður í Kína hafi versnað hratt og það sé ekki ástæða til þess að vera bjartsýnn á að hlutirnir ganga vel þar á næstu misserum.

Í frétt Reuters segir að kínverska hagkerfið sé nú að fara í gegnum mesta hægagang sem það hafi gengið í gegnum í 25 ár, enda hefur hagvaxtar­skeiðið í landinu verið langt og hagvöxtur mælst á bilinu sjö til tíu prósent á ári undan­farin fimmtán ár.

Sala á bílum hefur verið dragast hratt saman í Kína en haldist stöðugri í Banda­ríkjunum og Japan. Spár fyrir­tækisins gera nú ráð fyrir að 8,95 milljónir Toyota bíla seljist á árinu.

Þýski bíla­fram­leiðandinn Volkswagen er nú sá fram­leiðandi sem hefur selt mest af nýjum bílum á árinu og er jafnframt sá sem fram­leiðir mest af bílum, og vara­hlutum í bíla. Samdráttur í Kína hefur komið illa við Volkswagen og minnkaði hagnaður fyrir­tækisins um sextán prósent milli ára.


Volkswagen overtook Toyota as the car maker that sold the most cars in the world in the first half of 2015: http://t.co/Gq2crSW3Bd


— Wall Street Journal (@WSJ) August 3, 2015

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár