Forsætisráðherra Danmerkur boðar þingkosningar 18. júní

Helle Thorning-Schmidt, forsætis­ráðherra Danmerkur, boðaði á blaðamanna­fundi, í danska forsætis­ráðuneytinu í morgun, að þing­kosningar verði haldnar í landinu þann 18. júní næst­komandi.

Undan­farna mánuði hafa verið uppi vanga­veltur um hvenær blásið yrði til kosninga í Danmörku, en eftir tilkynningu forsætis­ráðherrans í morgun getur kosninga­barátta dönsku stjórn­mála­flokkanna formlega hafist. Flestir sáu reyndar í hvað stefndi, og því gefur nú þegar að líta kosninga­plaggöt víða í Kaupmanna­höfn, en óheimilt er samkvæmt dönskum lögum að hefja eiginlega kosninga­baráttu fyrr en formlega hefur verið tilkynnt um þing­kosningar.

Þing­kosningarnar í Danmörku koma í kjölfar tillagna ríkis­stjórnarinnar varðandi málefni flótta­manna, áfram­haldandi vöxt danska þjóðar­búsins og þá var allsherjar velferðar­pakki kynntur á dögunum. Þrátt fyrir sterkari stöðu nú en oft áður bíður Helle Thorning-Schmidt verðugt verkefni að tryggja sér fjögur ár í viðbót í danska forsætis­ráðuneytinu.

Bláa blokkin mælist með meirihluta atkvæða


Þrátt fyrir gott gengi Sós­í­alde­mókrata Thorning-Schmidt í skoð­ana­könn­unum að und­an­förnu mælist nú bláa blokkin svo­kall­aða með meiri­hluta atkvæða. Þar fer Lars Løkke Rasmus­sen, for­maður Venstre, fremstur í flokki, en til bláu blokk­ar­innar telj­ast sömu­leiðis danski þjóð­ar­flokk­ur­inn, sem hefur aukið fylgi sitt mikið að und­an­förnu, og danski íhalds­flokk­ur­inn.

Til rauðu blokkarinnar í dönskum stjórna­málum teljast Sósíal­demókratar, Einingar­listinn, Radikale venstre og stuðnings­flokkur ríkis­stjórnar Thorning-Schmidt, Sósíalíski þjóðar­flokkurinn, sem sagði sig úr ríkis­stjórninni eftir umdeilda sölu ríkisins á eignar­hluti sínum í orku­fyrirtækinu DONG til Goldman Sachs. Þá hefur Sósíalíski þjóðar­flokkurinn sömuleiðis logað í innan­flokksátökum að undan­förnu, og tapað miklu fylgi í kjölfarið.

Þrátt fyrir að skoðana­kannanir bendi til að bláa blokkin nái meirihluta í komandi þing­kosningum í Danmörku nýtur Helle Thorning-Schmidt mun meira persónu­fylgis en hinn umdeildi Lars Løkke Rasmussen formaður Venstre. Danskir stjórnmála­skýrendur telja því að allt geti gerst, og spennandi og snörp kosninga­barátta sé framundan í landinu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár