Urðu ekki við hjálparbeiðni Snowdens en hurfu bæði úr embætti vegna upplýsingaleka: „Kaldhæðni örlaganna eða bara karma“

Kristinn Hrafnsson segir Sigmund Davíð og Hönnu Birnu hafa hunsað beiðni Snowdens um pólitískt hæli á Íslandi. Það sé lykil­spurning hvort ný ríkis­stjórn muni rétta uppljóstr­ar­anum hjálpar­hönd.

Kristinn Hrafnsson, blaða­maður sem starfað hefur sem talsmaður Wikileaks undan­farin ár, segir að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Hanna Birna Kristjáns­dóttir, fyrr­verandi forsætis­ráðherra og innan­ríkis­ráðherra, hafi hunsað hjálpar­beiðni uppljóstrarans Edwards Snowdens sumarið 2013. Auk þess hafi stjórnar­flokkarnir látið þingmanna­frumvarp um að Snowden fengi ríkis­borgararétt daga uppi án efnislegrar umræðu. „Nú veit engin hvernig stjórn verður hér að afloknum kosningum en það er í mínum huga lykil­spurning hvort hún muni rétta Snowden hjálpar­hönd. Hann fylgist með,“ skrifar Kristinn á Facebook. 

Fjöldi mann­réttinda­samtaka, meðal annars Amnesty International, American Civil Liberties Union (ACLU) og Human Rights Watch, ýtti úr vör alþjóðlegri undir­skrifta­söfnun til stuðnings Edward Snowden fyrir helgi. Þess er krafist að Barack Obama veiti Snowden sakar­uppgjöf áður en hann lætur af embætti. 

Rúmlega þrjú ár eru liðin frá uppljóstrunum Snowdens en þökk sé þeim var heims­byggðin upplýst um stórtækar persónu­njósnir bandarískra og breskra stjórn­valda sem fela í sér brot gegn friðhelgi einkalífs milljóna manna um allan heim. Á vef Amnesty á Íslandi er bent á að enn dvelur Snowden í mikilli óvissu í Rússlandi. Á grund­velli bandarískra njósna­laga á Snowden yfir höfði sér ákæru og líklega áratuga­langan fangelsisdóm snúi hann aftur til Banda­ríkjanna.

Ráðherrar sagðir hafa hunsað erindið

„Nú er byrjað að sýna kvikmynd Oliver Stone um Edward Snowden (sé hvergi hvenær hún er væntanleg til Íslands) og á sama tíma gerist tvennt; þrýst er á Obama að náða hann og njósna­nefnd Banda­ríkjaþings áréttar bullið um að hann hafi tjónað mikilvæga öryggis­hagsmuni. Vonir um náðun eru vægast sagt veikar. Bandaríkja­menn eru klofnir í afstöðu sinni; helmingur telur hann þjóðhollann föður­landsvin, helmingur land­ráðamann. Kvik­myndin kann að breyta þessu sem þó er alls ekki víst,“ skrifar Kristinn og víkur svo að hjálpar­beiðni Snowdens: „Skömmu eftir að Snowden steig fram, í júní 2013, sendi hann hjálpar­beiðni til Íslenskra stjórn­valda. Ég var milli­liðurinn. Þáverandi forsætis­ráðherra og innan­ríkis­ráðherra hunsuðu erindið eða ýttu því frá sér. Bæði urðu að hverfa úr embætti vegna upplýsinga­leka, þó eðisólíkir væru. Ef til vill kaldhæðni örlaganna eða bara karma. Þingmenn allra stjórnar­andstöðu-flokka fluttu frumvarp á sumar­þingi um að veita honum ríkis­borgararétt en stjórnar­flokkarnir köstuðu því út úr þinginu, án efnislegrar umræðu.“

Kristinn segist hafa spurt þingmenn Vinstri grænna, Pírata og Samfylkingarinnar fyrr á árinu hvort þeir vilji styðja Snowden að afloknum kosningum. „Svörin verða ekki túlkuð öðruvísi en að svo sé (Katrín Jakobs­dóttir, Árni Páll og Helgi Hrafn). Það væri vert að spyrja sjálfstæðis­menn og fram­sóknarmenn, formsins vegna, hvort þeir eru enn við sama heygarðs­hornið. Þá er þetta ágæt próf­spurning til Viðreisnar því afstaðan til Snowden er þess eðlis að afhjúpa raun­verulegt eðli þeirrar hreyfingar og hvort hún boðar raun­veruleg frávik frá kreddum sérhagsmuna valda­klíkunnar. Nú veit engin hvernig stjórn verður hér að afloknum kosningum en það er í mínum huga lykil­spurning hvort hún muni rétta Snowden hjálpar­hönd. Hann fylgist með.“

Innanríkisráðuneytið gegn Snowden

Stundin hefur áður fjallað um meðferð innan­ríkis­ráðuneytisins á beiðni Edwards Snowdens um pólitiskt hæli. Um svipað leyti og Kristinn Hrafnsson kom óskum hans áleiðis barst Íslandi framsals­beiðni frá bandarískum yfir­völdum sem vildu aðstoð Íslendinga við að hafa hendur í hári Snowdens. Í ljósi þess að framsals­beiðnin uppfyllti ekki skilyrði laga um framsal sakamanna – Snowden var ekki staddur á Íslandi þegar hún barst – hefði innan­ríkis­ráðuneytið lögum samkvæmt átt að hafna framsals­beiðninni strax. Það var hins vegar ekki gert. Í staðinn óskaði innan­ríkis­ráðuneytið eftir upplýsingum um Snowden frá Banda­ríkjunum og hélt málinu opnu í marga mánuði. Þá fékk Snowden réttar­stöðu sakbornings þótt ekkert benti til þess að hann hefði brotið íslensk lög. Þetta gagnrýndi Ragnar Aðal­steinsson, hæstaréttar­lögmaður sem fór með mál Snowdens, harðlega. Taldi hann ráðuneytið hafa skaðað réttar­stöðu skjólstæðings síns.

„Viðbrögð innan­ríkis­ráðuneytisins endur­spegla þjónkun við bandarísk stjórn­völd sem ég sé ekki að samræmist íslenskum hagsmunum á nokkurn hátt,“ sagði Kristinn þegar DV ræddi við hann sumarið 2014. Hringl­andi og tafir innan­ríkis­ráðuneytisins í tíð Hönnu Birnu Kristjáns­dóttur sköðuðu réttar­stöðu Snowdens hérlendis og girtu fyrir að hann kæmi til Íslands og leitaði hér hælis. Snowden gat ekki treyst því að hann fengi um frjálst höfuð strokið á Íslandi. Hann mátti allt eins eiga von á því að verða hand­tekinn og afhentur bandarískum stjórn­völdum. Þá hefði farið fyrir honum eins og fór fyrir Chelsea Manning.

„Hættuleg skilaboð“

„Ljóst er að aðgerðir Edward Snowden voru í þágu almanna­heilla. Hann kom til leiðar einni mikil­vægustu umræðu sem um getur í áratugi um geðþótta­eftirlit stjórn­valda og var kveikjan að alþjóðlegri hreyfingu til varnar persónu­verndar á tímum rafrænna samskipta.“ Þetta er haft eftir Salil Shetty, framkvæmda­stjóra Amnesty International á vef Íslands­deildar samtak­anna.

„Að refsa Snowden fyrir gjörðir sínar sendir þau hættulegu skilaboð að þeir sem verða vitni að mann­réttinda­brotum á bak við luktar dyr ættu ekki að segja frá. Það er kaldhæðnislegt að Snowden sé meðhöndlaður sem njósnari þegar hetjudáð hans dró athygli heimsins að þeirri staðreynd að bandarísk og bresk stjórn­völd stunduðu ólöglegar njósir á milljónum einstaklinga, án þeirra samþykkis. Fjölda­eftirlitið sem Snowden afhjúpaði hefur áhrif á líf fólks um allan heim. Herferð okkar gefur almenningi kost á að kalla eftir sakar­uppgjöf Snowden og að þakka honum fyrir að hrinda af stað aðgerðum einstaklinga um heim allan sem láta sig friðhelgi einka­lífsins varða.“

Hér má skrifa undir ákall mann­réttinda­samtakanna til Barack Obama, Bandaríkja­forseta um að veita Edward Snowden sakar­uppgjöf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár