Þrír sóttu um að verða dómari við MDE – Oddný sú eina sem sótti um aftur

Nefnd á vegum forsætis­ráðherra mat þrjá umsækjendur um dómara­embætti við Mann­réttinda­dómstól Evrópu hæfa fyrr á þessu ári. Tveir drógu umsókn sína til baka og auglýsa þurfti embættið aftur.

Oddný Mjöll Arnar­dóttir landsréttar­dómari er sú eina þeirra þriggja sem sóttu um stöðu embættis íslensks dómara við Mann­réttinda­dómstól Evrópu (MDE) fyrr á þessu ári sem hefur sótt aftur um embættið.

Auk hennar sóttu Dóra Guðmunds­dóttir lögfræðingur og Páll Þórhallsson, skrif­stofustjóri í forsætis­ráðuneytinu, um embættið áður en umsóknar­frestur rann út 8. ágúst síðastliðinn.

Þing Evr­­ópu­ráðs­ins tekur ákvörðun um það hvert þeirra verður fyrir val­inu sem íslenski dóm­­ar­inn við rétt­inn, en Evr­­ópu­ráðið fór þess á leit við íslensk stjórn­­völd í fyrra að þau myndu til­­­nefna þrjú dóm­­ara­efn­i sem myndu keppa um að taka við af Róberti Spanó, sem her var dómari við réttinn frá 2013. Kjör­tímabil Róberts rennur út í lok október næst­komandi og hann má ekki sækjast eftir áfram­haldandi setu.

Embættið var fyrst auglýst til umsóknar seint á síðasta ári og umsóknar­frestur var til 14. janúar. Þá sóttu þrír um embættið. Auk Oddnýjar voru það Jónas Þór Guð­munds­son, ­lög­mað­ur og stjórnar­formaður Lands­virkjunar, og Stefán Geir Þórisson, lögmaður.

Fimm manna nefnd sem Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra skip­aði til að leggja mat á þessa þrjá umsækj­endur lauk störf­um í byrjun febrúar. Nið­ur­staða hennar var sú að allir umsækj­end­urnir þrír sem sótt­ust eftir til­nefn­ingu teldust hæfir til að vera verða til­nefndir af hálfu Íslands.

Í byrjun júní tók svo nefnd ráðgjafa á vegum Evrópu­ráðsins umsækjendurna í viðtal. Eftir þau viðtöl drógu Jónas og Stefán Geir hins vegar umsóknir sínar til baka. Viðmælendur Kjarnans segja að nefndin hafi frestað því að skila niður­stöðu sinni eftir viðtölin þar sem umsækjenda­hópurinn hafi þótt of veikur til að gegna stöðunni. Undan­tekningin þar hafi verið Oddný. Þar sem reglur um skipun dómara í embætti hjá MDE séu þannig að kjósa þurfi milli þriggja umsækjenda var ekki annað að gera en að auglýsa aftur eftir umsækjendum.

Mann­réttinda­dómstóll Evrópu í Strassborg fjallar um mál sem til hans er vísað af einstaklingum og samnings­aðilum vegna meintra brota á ákvæðum mann­réttinda­sáttmála Evrópu eða samnings­viðaukum við hann. Dómstóllinn er skipaður einum dómara frá hverju samnings­ríkja.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár