Bandaríski herinn rannsakar af hverju hann sendi miltisbrand á 24 rannsóknarstofur

Bandaríski herinn hefur boðað rannsókn á því hvernig miltis­brandur er meðhöndlaður innan hans, en talið er að lifandi miltis­brands­sporar hafi verið sendir óvart til 24 rannsóknar­stofa í ellefu ríkjum Banda­ríkjanna auk Suður-Kóreu og Ástralíu. Ekki er vitað til þess að miltis­brandurinn hafi valdið neinum skaða.

Á miðvikudag var fyrst sagt frá því óvart hafi verið send sýnishorn af þessum banvæna sjúkdómi á nokkra staði. Í gær var svo greint frá því að enn fleiri mistök hefðu verið gerð og miltis­brandurinn sendur enn víðar en fyrst var talið.

Sérfræðingar hafa gagnrýnt þessi mistök hersins harðlega og kallað eftir því að farið verði yfir málið og þær varúðar­ráðstafanir sem herinn gerir.

Sporarnir af miltis­brandinum áttu að vera óvirkir eða dauðir, en svo reyndist ekki vera. Herinn hefur nú óskað þess að allar rannsóknar­stofur hans, sem hafa áður fengið óvirkan miltis­brand, rannsaki efnið vel. Þá hefur einnig verið ákveðið að hætta öllum rann­sóknum og vinnu með efnið.

Undan­farin ár hefur verið óttast að miltis­brandur gæti verið notaður í hryðjuverka­starfsemi, en allir sem sýkjast og eru ekki meðhöndlaðir í tæka tíð deyja af völdum hans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár