Það borgar sig að kaupa Lionel Messi þótt verðið sé 43 milljarðar króna

Þrjú evrópsk knattspyrnu­félög hafa látið framkvæmt greiningu á því hvort það borgi sig að kaupa argentíska knattspyrnu­stórstirnið Lionel Messi frá Barcelona, en hann er með ákvæði í samningi sínum sem gerir liðum kleift að kaupa hann á 205 milljónir punda, rúmlega 43 milljarða króna. Manchester Evening News greinir frá þessu, en eitt liðanna þriggja er talið vera hið moldríka Manchester City.

Dýrasti knattspyrnu­maður allra tíma er Walesverjinn Gareth Bale, sem var keyptur til Real Madrid fyrir 85 milljónir punda, tæpa 18 milljarða króna.

Dýrasti knattspyrnumaður allra tíma er Walesverjinn Gareth Bale, sem var keyptur til Real Madrid fyrir 85 milljónir punda, tæpa 17 milljarða króna.
Dýrasti knatt­spyrnu­maður allra tíma er Walesverjinn Gareth Bale, sem var keyptur til Real Madrid fyrir 85 millj­ónir punda, tæpa 17 millj­arða króna.

Í dag er dýrasti knattspyrnu­maður heims Walesverjinn Gareth Bale, en Real Madrid greiddi 85 milljónir punda, 17,9 milljarða króna, fyrir hann. Það er aðeins meira en þau 80 milljón pund, 16,8 milljarðar króna, sem sama lið greiddi fyrir snillinginn Christiano Ronaldo.

Myndi skila 63 milljörðum króna í kassann


Í frétt Business Insider um málið segir að íþrótta­mark­aðs­fyr­ir­tækið Euromericas hafi látið gera grein­ingu á því hvort það myndi borga sig fyrir lið í ensku úrvals­deild­inni að borga 205 millj­ónir punda fyrir Messi. Samkvæmt nið­ur­stöðu grein­ing­ar­innar er virði Messi hærra en sem nemur kaup­verð­inu. Euromericas telur að hann geti náð að skapa um 300 millj­ónir punda, um 63 millj­arða króna, í tekjur fyrir nýja eig­endur. Í skýrslu fyr­ir­tæk­is­ins segir að þessi tala sé summa mark­aðsvirðis Messi, áhrif á mark­aðs­setn­ingu og fjöl­miðla­á­hrif í gegnum þær aug­lýs­ingar sem hann birt­ist í, en Messi aug­lýsir þegar vörur stór­fyr­ir­tækja á borð við Adidas, Pepsí, Dolce&Gabana og Lay´s.

Niður­staðan er því sú að þessi 27 ára knattspyrnu­snillingur, sem mun líklega slá flest met sem hægt er að slá í

Það myndi borgar sig að kaupa Lionel Messi.

Það myndi borgar sig að kaupa Lionel Messi.
Það myndi borgar sig að kaupa Lionel Messi.

alþjóða­knattspyrnu áður en hann leggur skónna á hilluna, sé markaðs­legur happa­fengur. Kaupi félag Messi mun það þýða að það selur fleiri búninga, fleiri mæta á leiki, áhugi á liðinu í öðrum löndum eykst og spenna fyrir því á ferða­lögum erlendis eykst til muna.

Til að setja mikilvægi þessa í samhengi má rifja upp að þegar Real Madrid keypti David Beckham á sínum tíma þá greiddi liðið 25 milljónir punda fyrir. Í kjölfarið seldi liðið eina milljón Beckham-búninga á um 50 pund stykkið. Bara treyju­salan skilaði því tvöfalt fleiri pundum í kassann en Real Madrid greiddi fyrir leik­manninn.

Ekki margir sem myndu hafa efni á Messi


Það sem skiptir mestu máli af öllu er hins vegar sú nið­ur­staða grein­ing­ar­innar að Messi mun fjölga sjón­varps­á­horf­endum sem horfa á þá deild sem hann spilar í. Stærsti hluti tekna liða í ensku úrvalds­deild­inni kemur í kass­ann vegna risa­stórra sjón­varps­rétt­ar­samn­inga. Samkvæmt grein­ing­unni mun virði þeirra aukast enn frekar með til­komu stór­stjörnu á borð við Messi í deild­ina.

Það eru auðvitað ekki mörg lið í ensku deildinni sem hafa efni á leikmanni eins og Messi. Líklega eru þau einungis tvö, Manchester City og Chelsea. Þrátt fyrir að eigendur beggja eigi sannarlega fyrir verð­miðanum þarf að taka tillit til reglna FIFA um fjárhags­lega háttvísi (e. FIFA Financial Fair Play) sem eiga að jafna stöðu þeirra liða sem minna eiga gegn þeim sem eru í eigu einstaklinga með ótæmandi vasa. Bæði lið hafa hins vegar sýnt ótrúlega leikni við að komast fram hjá þessum reglum og myndu líkast til geta gert það ef til boða stæði að kaupa sjálfan Lionel Messi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár