Eggert kominn með nýtt forstjórastarf tæpum tveimur vikum eftir að hann hætti hjá Festi

Fyrr­ver­andi for­stjóri Festi hefur verið ráð­inn til að stýra stóru land­eld­is­fyr­ir­tæki á Suð­ur­landi sem er í þriðj­ungseigu Stoða. Hann fékk fimmt­án­föld mán­að­ar­laun greidd út við starfs­lok hjá Festi.

Eggert Þór Kristófersson.
Eggert Þór Krist­ó­fers­son. Mynd: Festi

Eggert Þór Krist­ó­fers­son, sem var sagt upp sem for­stjóra smá­söluris­ans Festi í sumar, er kom­inn með nýtt stjórn­enda­starf. Hann hefur verið ráð­inn for­stjóri Land­eldis hf., fyr­ir­tækis sem vinnur að upp­bygg­ingu fisk­eldis á Íslandi sem stefnir að því að fram­leiða 33.500 tonn af laxi á landi árið 2028. Eins og er rekur Landeldi hf. seiða­eld­is­stöð í Hvera­gerði og áframeld­is­stöð við Þor­láks­höfn á sam­tals yfir 33 hekt­ara svæði og hefur í dag öll til­skilin leyfi til að ala lax á landi. Félagið hefur borað eftir um 2.000 l/sek af jarð­sjó og tekið fjóra sjót­anka í notkun og verða þeir orðnir 14 tals­ins um næstu ára­mót. Lífmassi um næstu ára­mót er áætl­aður um 500 tonn. Félagið er nú með um 450 þús­und laxa í áframeldi og um 1,6 milljón í seiða­eldi. Um 25 manns vinna hjá félag­inu og um 50 starfs­menn hjá und­ir­verk­tökum.

Stærstu eig­endur Land­eldis eru fjár­fest­inga­fé­lagið Stoðir, sem á tæp­lega þriðj­ungs­hlut, Fram­herji hf.,. sem á 16,26 pró­sent hlut, og Fylla ehf. sem á 9,6 pró­sent.

Eggert mun hefja störf í næstu viku.

Rekinn en sagt að hann hefði sagt upp

Í byrjun júní ákvað stjórn Festi að reka Egg­ert úr starfi for­stjóra. Í kjöl­farið sendi stjórnin til­kynn­ingu til Kaup­hallar Íslands þar sem sagt var að Egg­ert hefði sagt starfi sínu lausu. Það reynd­ist ekki rétt og Egg­ert sagði þeim hlut­höfum sem sam­band höfðu að þannig væri í pott­inn búið.

Eftir mikla fjöl­miðlaum­fjöllun ákvað stjórnin að senda frá sér aðra kaup­hall­ar­til­kynn­ingu átta dögum síð­ar, þann 10. júní. Þar við­ur­kenndi hún að stjórnin hefði haft frum­kvæði að því að óska eftir sam­tali við Egg­ert um starfs­lok og að „við þær aðstæður óskaði for­­stjóri eftir að fá að segja upp störfum í stað þess að honum yrði sagt upp, með hags­muni sjálf síns og félags­­ins í huga. Var fall­ist á þá mála­­leit­an.“ Þetta er, sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans, heldur ekki sann­leik­anum sam­kvæmt. Egg­ert hefur sagt við þá hlut­hafa sem óskað hafa eftir að hann ræddi við þá um stöð­una að hann hafi verið rek­inn. Hreint og bein­t.

Auk þess fékk Egg­ert þær skýr­ingar á upp­sögn­inni að í henni fælist tæki­færi fyrir hann. Sjö ár í for­stjóra­stól væri nægj­an­legur tími, Egg­ert væri enn ungur maður og breyt­inga væri þörf.

Í seinni til­kynn­ing­unni var gefin önnur ástæða. Sam­keppni væri að aukast á öllum rekstr­ar­sviðum félags­ins og ólík verk­efni blöstu við. Það kall­aði á „nýja nálgun og nýjar hendur til að vinna verk­in.“

Fékk 76 milljónir króna í starfslokasamning

Upp­sögnin hafði miklar afleið­ingar. Stórir hlut­hafar kröfð­ust þess að kosið yrði á ný í stjórn Festi, þrátt fyrir að aðal­fundur væri til­tölu­lega nýlega afstaðin. Það leiddi til þess þrír nýir stjórn­ar­menn komu inn eftir stjórn­ar­kjör sem fór fram í síð­asta mán­uði.

Þessi ólga breytti þó ekki stöðu Eggerts. Búið var að segja honum upp og störfum hans fyrir Festi lauk um síð­ustu mán­aða­mót.

Í árs­hluta­upp­gjöri Festi sem birt var undir lok júlí­mán­aðar kom fram að kostn­aður félags­ins vegna starfs­loka­samn­ings við Egg­ert næmi um 76 millj­ónum króna og að hann yrði allur bók­færður á þriðja árs­fjórð­ungi.

Miðað við þann 76 millj­óna kostnað sem stjórn Festi áætlar mun Egg­ert Þór við starfs­lokin fá greiðslu sem nemur um fimmtán mán­að­ar­launum hans. Þá er miðað við með­al­mán­að­ar­laun for­stjór­ans eins og þau voru í fyrra, en þá voru þau um 4,9 millj­ónir króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár