Safnar fé til að segja ótrúlega sögu eins smells undursins Chumbawamba

Þótt það átti sig ekki allir á hvaða hljómsveit Chumbawamba var þá hafa líkast til flestir sem voru með aldur til að komast inn á skemmtistaði undir lok síðustu aldar dansað og sungið með ofur­smellinum Tubthumping mun oftar þeir kæra sig um að muna eftir. Eða heyrt hann þegar þeir spiluðu FIFA World Cup ´98 tölvu­leikinn af áfergju, þar sem lagið lék stórt hlutverk.

https://www.youtube.com/watch?v=RTjC6rxHz8g

Það sem fæstir vita er að á bakvið þetta eins smells undur er stór­merkileg saga um anarkista, aðgerðar­sinna og hústöku­fólk sem höfðu verið að í tæpa tvo áratugi áður en þeir slógu allt í einu í gegn með þessu óvænta, og að mati margra óþolandi, popplagi.

Nú ætlar Dunstan Bruce, fyrrum forsprakki sveitarinnar, að gera heimildar­mynd um hina ósögðu sögu Chumbawamba. Myndin heitir auðvitað „I Get Knocked Down“ eftir frægustu línunni úr Tubthumping. Og hann er þegar búinn að safna fyrir henni á hópfjármögnunar­síðunni Kickstarter.

Gáfu mest alla peninganna sína


Í kynn­ing­ar­mynd­bandi vegna söfn­un­ar­innar segir Bruce frá því að þótt flestir muni ein­ungis eftir honum sem söngv­ar­anum með aflit­aða hárið, mask­ar­ann og eyrna­hring­ina sem sem söng „I get knocked down/But I get up again/You're never going to keep me down“. Hann segir þó að vel­gengni þess lags hafi ein­ungis verið topp­ur­inn á mjög stórum ísjaka sem sé stór­kost­lega fyndin saga Chumbawamba sem hófst upp úr 1980 og lauk ekki fyrr en árið 2012.

https://d2pq0u4uni88oo.cloudfront.net/projects/1844056/video-555482-h264_high.mp4

Bruce lofar stór­skemmtilegri niður­stöðu nái hann að gera myndina. Það er nefnilega að mörgu að taka hjá Chumbawamba sem fólk hefur almennt enga hugmynd um. Til dæmis sagan á bakvið það þegar hljóm­sveitar­meðlimir helltu vatni yfir ráðherra Verkamanna­flokksins á Brit-verðlauna­hátíðinni 1998, háfu nánast alla peninganna sem þeir græddu þegar frægðarsól þeirra steig hæst til að fjármagna allskyns andóf og höfnuðu 1,5 milljón dala tilboði frá Nike, sem vildi nota lagið fræga í auglýsingu, 30 sekúndum eftir að það var sett fram.

Meðlimir Chumbawamba helltu vatni yfir John Prescott á Brit-verðlauna­hátíðinni árið 1998.

Meðlimir Chumbawamba helltu vatni yfir John Prescott á Brit-verðlaunahátíðinni árið 1998.
Meðlimir Chumbawamba helltu vatni yfir John Prescott á Brit-verð­launa­há­tíð­inni árið 1998.

Bruce er þegar búin að ná því markmiði sínu að safna 40 þúsund pundum í gegnum Kickstarter. Alls hafa, þegar þetta er skrifað, tæplega 1.200 manns samþykkt að láta fé renna til verk­efnisins. Og enn er tími til að bæta við þar sem söfnunin klárast ekki fyrr en á morgun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár