Almannavarnarstig við Grindavík verður fært af neyðarstigi og niður á hættustig

Nýtt stöðu­mat sýnir að „líkur á skyndi­legri gosopnun innan bæj­ar­marka Grinda­víkur hafi farið minnk­andi með hverjum degi og eru í dag taldar litlar. Grind­vík­ingar fá rýmri heim­ild til að huga að eignum sínum. Sú ákvörðun nær ekki til almenn­ings.“

Mikið tjón
Mikið tjón Sprungur hafa mynd­ast víða í Grinda­vík vegna jarð­hrær­inga og tjón á mann­virkjum er umtals­vert. Mynd: Golli

Rík­is­lög­reglu­stjóri, í sam­ráði við Lög­reglu­stjór­ann á Suð­ur­nesjum, hafa ákveðið að breyta almanna­varn­ar­stigi vegna jarð­hrær­inga við Grinda­vík, af neyð­ar­stigi niður á hættu­stig frá og með klukkan 11 á morgun, fimmtu­dag­inn 23. nóv­em­ber.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Almanna­vörnum. Þar segir að ákvörð­unin hafi verið tekin í kjöl­far á nýju stöðu­mati Veð­ur­stofu Íslands, þar sem fram kemur meðal ann­ars að út frá gögnum sem stuðst er við í hættu­mati Veð­ur­stof­unnar og að teknu til­liti til þró­unar síðan 10. nóv­em­ber síð­ast­lið­ins, hafi „líkur á skyndi­legri gosopnun innan bæj­ar­marka Grinda­víkur farið minnk­andi með hverjum degi og eru í dag taldar litlar. Land rís ennþá í Svartengi og kvika þar gæti flætt á ný undir í kviku­gang­inn undir Grinda­vík. Veð­ur­stofan segir fyr­ir­boða um slíka atburða­rás yrði hægt að greina á skjálfta- og GPS mælum.“

Áfram eru þó taldar líkur á eld­gosi á svæð­inu yfir kviku­gang­inum, lík­leg­asta milli Haga­fells og Sýl­ing­ar­fells.

Í til­kynn­ing­unni segja Almanna­varnir að þær vilji þó árétta að svæðið sé enn vel vaktað, og hætta sé til staðar. Íbúum verður ekki fylgt inn á svæðið en björg­un­ar­sveitir verði í við­bragðs­stöðu víða um bæinn. „Með hlið­sjón af þessu hefur verið tekin ákvörðun um rýmri heim­ildir íbúa Grinda­víkur til að huga að eigum sínum. Almanna­varnir vilja ítreka að öðrum er óheimil för inn í bæinn. Þetta eru rýmri heim­ildir til íbúa Grinda­víkur, ekki almenn­ings.“

Í frétt á heima­síðu Veð­ur­stof­unnar segir að út frá nýj­ustu gögnum og að teknu til­liti til þró­unar virkn­innar síðan 10. nóv­em­ber, hafi líkur á skyndi­legri gosopnun innan bæj­ar­marka Grinda­víkur farið minnk­andi með hverjum degi og eru í dag taldar litlar. „Reikna má með að kvikan í gang­inum undir Grinda­vík sé að hluta til storknuð, sem einnig dregur úr líkum að sú kvika nái skyndi­lega að brjóta sér leið til yfir­borðs innan bæj­ar­markanna. Það skal hins­vegar tekið fram að áfram eru taldar líkur á eld­gosi yfir kviku­gang­inum og er lík­leg­asta svæðið fyrir upp­tök eld­goss milli Haga­fells og Sýl­ing­ar­fells.“

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðhræringar við Grindavík

FréttirJarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næt­ur­langt í Grinda­vík þótt lög­reglan mæli ekki með því

Frá og með morg­un­deg­inum verður íbúum og fólki sem starfar hjá fyr­ir­tækjum í Grinda­vík heim­ilt að fara í bæinn og dvelja þar næt­ur­langt. Í nýlegri frétta­til­kynn­ingu lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum er greint frá þessu. Íbúar eru þó varaðir við að inn­viðir bæj­ar­ins séu í lama­sessi og sprungur víða. Bærinn sé því ekki ákjós­an­legur staður fyrir fjöl­skyldur og börn.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár