Ofrukkaði sveitarfélög fyrir sorphirðu yfir 100 milljónir króna

Íslenska gáma­fé­lagið ofrukk­aði Garðabæ og Mos­fellsbæ yfir 100 millj­ónir króna vegna sorp­hirðu. „Þá eruð þið ekki alveg sak­laus í þessu máli,“ sagði starfs­maður fyr­ir­tæk­is­ins.

Íslenska gáma­fé­lagið ofrukk­aði sveit­ar­fé­lögin Mos­fellsbæ og Garðabæ um tugi millj­óna króna vegna sorp­hirðu í sveit­ar­fé­lög­unum. Fyr­ir­tækið ofrukk­aði Garðabæ um alls 74 millj­ónir króna á núvirði á árunum 2017 til 2020 og Mos­fellsbæ um 43 millj­ónir króna á núvirði á árunum 2017 til 2021. Þetta kemur fram í gögnum sem Heim­ildin hefur undir höndum.

Margra ára ofrukkun

Fyr­ir­tækið Resource International var fengið af sveit­ar­fé­lög­unum til að skoða greiðslur þeirra til Íslenska gáma­fé­lags­ins á árunum 2013 til 2021. Nið­ur­staða þeirra var sú að nán­ast allt þetta tíma­bil ofrukk­aði Íslenska gáma­fé­lagið sveit­ar­fé­lögin fyrir sorp­hirðu. Það var hins vegar árið 2017 sem þær juk­ust hratt. Sem dæmi ofrukk­aði Íslenska gáma­fé­lagið Garðabæ árið 2016 um 1,8 millj­ónir króna á núvirði. Ári seinna ofrukk­aði það svo sveit­ar­fé­lagið um 20 millj­ónir króna á núvirði og héldu þær ofrukk­anir svo áfram næstu ár.

Borguðu enga vexti

Þegar upp komst um ofgreiðslur sveit­ar­fé­lag­anna til Íslenska …

Kjósa
38
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár