Royal Bank of Scotland tapaði 714 milljörðum í fyrra

Breski bankinn Royal Bank of Scotland tapaði 3,5 milljörðum punda í fyrra, eða sem nemur 714 milljörðum króna. Þrátt fyrir það greiðir bankinn, sem breska ríkið á 79 prósent hlut í, 421 milljón punda í bónus­greiðslur til starfs­manna, eða sem nemur um 85 milljörðum króna.

Frá þessu greinir breska ríkis­útvarpið BBC. Forstjóri bankans, Ross McEwan, segir í viðtali við BBC að bónus­greiðslurnar séu sérstaka­lega viðkvæmt efni, en sagði þær vera hluta af rekstrar­umhverfinu og að þær væru „nauðsynlegar“ til þess að laða fólk til bankans sem gæti framkvæmt tæknilega erfiða hluti.

Royal Bank of Scotland var að stærstum hluta þjóð­nýttur, haustið 2008, eftir að bankinn fór næstum í þrot í hremmingunum á fjármála­mörkuðum. Innviðir bankans reyndust miklu mun verri en margir höfðu reiknað með, og því hefur starfsemi bankans mótast að miklu leyti af því alveg frá hausti 2008. Tapið vegna rekstursins í fyrra má rekja til lélegrar afkomu Citizens, sem er dóttur­félag bankans í Banda­ríkjunum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár