„Lítur út fyrir að vera eins ógegnsætt og ófaglegt og hægt er að ímynda sér“

Þing­maður Pírata spurði for­sæt­is­ráð­herra á þingi í dag hvaða for­sendur lægju að baki fyr­ir­ætl­aðri sölu á hlut rík­is­ins í Íslands­banka.

Smári McCarthy, þingmaður Pírata.
Smári McCarthy, þing­maður Pírata. Mynd: Bára Huld Beck

„Það er margt í gangi núna og mál mál­anna þessa stund­ina er kannski fyr­ir­huguð sala rík­is­stjórn­ar­innar á hlut í Íslands­banka af ótil­greindri stærð og þetta hefur skilj­an­lega valdið tölu­verðum áhyggjum í sam­fé­lag­inu enda virð­ist engin eft­ir­spurn vera eftir þess­ari aðgerð – nema mögu­lega hjá þeim sem að munu kannski mest græða á henni.“

Þetta sagði Smári McCarthy, þing­maður Pírata, í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í dag en hann spurði Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra hvaða for­sendur lægju að baki fyr­ir­ætl­aðri sölu á hlut rík­is­ins í Íslands­banka. Hann spurði jafn­framt hvort ein­hver skil­yrði væru sett fyrir henni og hvenær rík­is­stjórnin hefði hugsað sér að gera skil­yrðin og for­send­urnar opin­berar.

„Það er margt óljós með þessar fyr­ir­ætl­anir og margir spyrja sig hvers vegna liggi svona mikið á. Hinn naumi tímara­mmi sem ætl­aður er þing­inu til að fara yfir þetta er enn eitt dæmið um heima­til­búna tíma­pressu. Eðlilegt verk­lag við að fram­kvæma svona stóra óaft­ur­kræfa aðgerð er að byrja á því að setja sér for­sendur fyrir því hvaða skil­yrði þarf að upp­fylla til þess að aðgerðin telj­ist lík­leg til þess að heppn­ast og skil­greina hvað nákvæm­lega felst í því að árangur hafi náðst og fara síðan ekki af stað fyrr en þær for­sendur séu upp­fylltar,“ sagði hann.

Smári sagði enn fremur að einu for­send­urnar sem rík­is­stjórnin virt­ist hafa lagt fram væru að þetta væri í stjórn­ar­sátt­mála og því lægi nú á að gera þetta fyrir kosn­ingar. „Engin skil­yrði hafa komið fram um ásætt­an­legan kostnað og ávinn­ing, efna­hags­for­sendur, stöð­ug­leika­skil­yrði, skil­yrði um kaup­endur, skil­yrði um verð og svo fram­vegis, en ef slík skil­yrði hefðu komið fram þá gæti þingið að minnsta kosti lagt mat á það hvort að þau skil­yrði séu góð og hvort að þau séu upp­fyllt.

En séu engin önnur skil­yrði til staðar er það til marks um að allar áhyggjur fólks af enn einu einka­væð­inga­ferl­inu séu rétt­mætar. Hvorki ég né Píratar almennt erum í grunn­inn á móti því að þessi hluti Íslands­banka sé seldur en fyrir okkur er lyk­il­at­riði að það sé gert á réttum og fag­legum for­sendum og í gegn­sæju ferli. Það er ekki nóg að kalla ferlið gegn­sætt til þess að það sé það, það verður raun­veru­lega að birta gögnin. Þetta lítur út fyrir að vera eins ógegn­sætt og ófag­legt og hægt er að ímynda sér,“ sagði Smári.

Einmitt verið töluverð umræða um fjármálakerfið

Katrín svar­aði og sagði að þetta til­tekna mál hefði verið til umræðu snemma árs 2020. „Þegar þetta var til umræðu á vett­vangi ráð­herra­nefndar um efna­hags­mál; að ráð­ast í sölu á hlut í Íslands­banka. Og þá kom nákvæm­lega sami mál­flutn­ingur fram, það er að segja að þetta væri bara akkúrat röng tíma­setn­ing en þó eng­inn á móti því að selja hlut í bank­anum, eða kannski ekki eng­inn. Flestir með­mæltir því að selja hlut í bank­anum en að það væri bara ekki rétta tíma­setn­ingin.“

Hún sagði jafn­framt að henni fynd­ist hún heyra þetta end­ur­óma aftur að eng­inn eða fæstir væru á móti því að selja hlut í bank­anum, eða bara ekki á þessum tíma. „Ég get ekki fall­ist á það sem hátt­virtur þing­maður segir að þetta komi í kjöl­far þess­arar einu línu í stjórn­ar­sátt­mála. Ég ætla að leyfa mér að rifja hér upp að hér var unnin hvít­bók um fjár­mála­kerfið. Hún fékk tölu­verða umræðu í þing­sal. Í henni voru margir mjög mik­il­vægir punktar, aðrir umdeildir og gagn­rýndir en engu að síður er ekki hægt að segja að hér hafi ekki farið fram tölu­verð umræða um fram­tíð fjár­mála­kerf­is­ins. Við erum búin að sjá, og það þekkir hátt­virtur þing­maður jafn­vel og ég haf­andi setið í efna­hag- og við­skipta­nefnd alla­vega á ein­hverjum tíma­punktum þá erum við auð­vitað á und­an­förnum árum búin að ráð­ast í gagn­gerar breyt­ingar á umgjörð fjár­mála­kerf­is­ins á Íslandi. Breyt­ingar sem koma fram í mjög ítar­legri skýrslu sem ég skil­aði í kjöl­far beiðni hátt­virts þing­manns Björns Levís Gunn­ars­sonar sem hafa gert það að verkum að þetta kerfi er allt annað kerfi en það var til að mynda þegar þessi mál voru hér til umræðu snemma á þess­ari öld.“

Eitt af því sem þarna skipti máli væri það frum­varp sem væri til umræðu á þing­inu um varn­ar­línu um fjár­fest­ingar en gat Katrín ekki fall­ist á það að þær for­sendur sem hátt­virtur þing­maður gæfi sér í fyr­ir­spurn­inni að þetta væri til­laga sem dytti af himnum ofan og að í þing­inu hefði engin umræða farið fram.

„Hér hefur einmitt verið tölu­verð umræða um fjár­mála­kerfið, eig­enda­stefna rík­is­ins hefur verið end­ur­skoðuð, eins og hátt­virtur þing­maður þekkir líka og þar liggja þessi áform öll fyrir. Þannig að ég kann­ast bara hrein­lega ekki við þetta ógagn­sæi sem hátt­virtur þing­maður vitnar hér til,“ sagði Katrín.

Ríkisstjórnin láti eins og hvítbókin sé hlutlaust fræðirit sem feli í sér svör við öllum leyndardómum alheimsins

Smári kom aftur í pontu og sagði að hann hefði ekki nefnt tíma­setn­ingu. „Ég nefndi for­sendur og skil­yrði. Þær for­sendur og þau skil­yrði liggja ekki fyrir, ég skil ekki hvernig stendur á því. Rík­is­stjórnin lætur eins og hvít­bókin sé hlut­laust fræði­rit sem feli í sér svör við öllum leynd­ar­dómum alheims­ins frekar en að vera nið­ur­staða ákveð­ins póli­tísks stefnu­mót­un­ar­ferlis þar sem nið­ur­staðan var að vissu leyti og að miklu leyti gefin sem frum­for­senda vinn­unnar.

En ég spyr bara aftur: Hvers vegna er ekki hægt að búa til ein­faldan tékk­lista fyrir svona aðgerðum og ráð­ast svo í fram­kvæmd­ina þá og því aðeins ef skil­yrðin eru upp­fyllt? Hvers vegna ekki? Hvers vegna þarf líka þennan asa að klára fyrir kosn­ingar frekar en að sam­mæl­ast um þverpóli­tískan tímara­mma yfir lengri tíma eins og hefur verið gert til dæmis í Noregi? Hvers vegna vill rík­is­stjórnin koma þessum eign­ar­hlut á markað, í verð, korteri fyrir kosn­ingar og það í miðri mestu efna­hagslægð síð­ari tíma?“ spurði hann.

Mjög gagnsætt ferli

Katrín svar­aði í annað sinn og sagði að henni heyrð­ist þing­mað­ur­inn „einmitt vera að tala um tíma­setn­ingar og ég hef heyrt hann nefna þær áður, þó ekki nákvæm­lega hér í fyrri fyr­ir­spurn sinni. Um þessi mál gilda algjör­lega skýr lög. Mjög gagnsæ og skýr lög sem ég tók þátt í að setja í rík­is­stjórn Vinstri hreyf­ing­ar­innar græns fram­boðs og Sam­fylk­ing­ar­innar sem gilda um sölu, með­ferð eign­ar­hlutum rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækjum og frum­varp til þeirra laga var lagt fram hér af hátt­virtum þing­manni Oddnýju Harð­ar­dóttur sem þá var fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra.

Og þar með var stofnuð Banka­sýsla rík­is­ins sem fer með þennan eign­ar­hlut rík­is­ins og þarf eng­inn neitt að velkj­ast í vafa um hvernig þetta fer því hún hefur lagt fram mjög skýra til­lögu um það hvernig hún sér fyrir sér að þetta sölu­ferli fari. Núna, eins og ég kom að hér áðan, er ein­göngu verið að taka ákvörðun um að hefja sölu­ferli. Það er ekki ákvörðun um end­an­lega sölu. Það ferli snýst um að kanna virði bank­ans á mark­aði og hvort að tím­inn sé þá heppi­legur núna til að selja þennan hlut sem hefur verið mið­ast við fjórð­ungs­hlut.

Það sem kemur fram í gögnum Banka­sýsl­unnar er það að það eru mjög margir þættir sem hafa áhrif á það hver end­an­leg nið­ur­staða verður og hvort að aðstæður eru metnar hag­felldar til að selja þennan hlut. Þættir sem við getum ekki sagt fyr­ir­fram hverjir verða nákvæm­lega og um það snýst sú vinna sem nú stendur yfir í þing­inu. Ég hefði talað um að þetta væri algjör­lega ljóst fyrir og væri raunar mjög gagn­sætt og hvernig það er skil­greint í lög­unum frá 2012,“ sagði hún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár