Hefur ekki áhyggjur af sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka

Forseti Alþingis neitar því að sporin hræði – og að sala Íslands­banka sé sam­bæri­leg einka­væð­ing­unni fyrir hrun. Lagaum­hverfið sé gjör­breytt og aðstæður allt aðrar. Þó sé ekki óeðli­legt að velta upp spurn­ingum og það eigi fólk einmitt að gera.

Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis.
Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþingis. Mynd: Bára Huld Beck

„Ég geri engar athuga­semdir við sölu á hlut rík­is­ins í Íslands­banka. Í fyrsta lagi er það nú þannig að þessi banki kom óvænt í hendur rík­is­ins sem greiðsla í formi stöð­ug­leika­fram­lags. Það var engin sér­stök stefna að ríkið ætti að eign­ast Íslands­banka og þar af leið­andi á það ekki að vera ein­hver sér­stök stefna að ríkið eigi að eiga hann áfram.“

Þetta segir Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþingis og þing­maður Vinstri grænna, í sam­tali við Kjarnann þegar hann er spurður út í sölu ótil­greinds hluta í Íslands­banka sem til stendur að selja í maí næst­kom­andi.

Segir hann að út frá sjón­ar­hóli Vinstri grænna sé salan í anda stefnu flokks­ins. „Við höfum ályktað að ríkið eigi að eiga Lands­bank­ann og er það stefna núver­andi rík­is­stjórnar. Það verður ekki hróflað við eign­ar­hald­inu á Lands­bank­anum og það er eig­enda­stefna rík­is­ins. Hún gerir ráð fyrir að Lands­bank­inn sé í eigu þjóð­ar­innar en að Íslands­banki geti verið seldur,“ segir hann.

Í öðru lagi sé „nátt­úru­lega svo gjör­breytt lagaum­hverfi frá því sem var á árunum fyrir hrun. Og þegar fyrsta einka­væð­ingin – með stórum staf – átti sér stað. Þá var einka­vætt með hræði­legum aðferðum í mjög frum­stæðu lagaum­hverfi. Það dró nú heldur betur dilk á eftir sér,“ segir hann.

Hverfandi áhætta fyrir almenning í landinu

Stein­grímur segir að nú sé búið að vinna mjög mikið umbóta­starf á fjár­mála­lög­gjöf­inni og að hverf­andi áhætta sé í því í sjálfu sér fyrir almenn­ing í land­inu og fyrir við­skipta­menn bank­ana þó eign­ar­hald sé ein­hvers staðar ann­ars staðar en hjá rík­inu.

„Það er í fyrsta lagi búið að skil­greina mjög vel skyldur þeirra aðila sem eiga ráð­andi hlut eða meira en 10 pró­sent. Þeir verða að und­ir­gang­ast miklar skyldur sem slíkir. Það er í öðru lagi til staðar lög­gjöf um raun­veru­lega eig­endur fyr­ir­tækja. Það er ekki lengur hægt að fela það í gegnum ein­hverja strá­menn. Nú verður að vera hægt að rekja það til enda hver sé hinn eig­in­legi og raun­veru­legi eig­andi ein­hvers. Það kemur ann­ars staðar inn í lög, eða í gegnum pen­inga­þvætt­is­lög­gjöf­ina.“

[links]Þá von­ast Stein­grímur til þess að Alþingi setji lög á næstu mán­uðum um aðskilnað við­skipta­banka og fjár­fest­inga­banka­starf­semi, það er að segja að þak verði sett á það hversu stór hluti umsvif­anna í við­skipta­banka, banka sem tekur við inn­lánum frá almenn­ingi, megi vera fjár­fest­inga­banka­starf­semi.

„Það kemur í veg fyrir að það geti gerst, sem var hér í gamla daga, að banki sem er skráður við­skipta­banki og tekur við inn­lánum verði að uppi­stöðu ein­hver áhættu­sækin fjár­fest­inga­staf­semi. Það er enn í lögum á Íslandi að inn­stæður eru for­gangs­kröfur í banka. Ákvæði neyð­ar­lag­anna, að því leyti til, er ennþá í lögum á Íslandi. Ef banki fer niður þá eru inni­stæð­urnar ekki bara tryggðar með ein­hverjum inni­stæðu­trygg­inga­sjóði heldur eru þær for­gangs­kröfur í búið. Þannig að það má segja að hags­munir inni­stæðu­eig­enda séu eins vel tryggðir og nokkur kostur er. Síðan erum við með háar eig­in­fjár­kröfur á banka, sem ég tel vera gott, og er það lær­dómur frá banka­hrun­inu. Það er haft ríku­legt borð fyrir báru hvað varðar það að eigið fé verður að vera mikið miðað við hans umsvif.

Að síð­ustu þá segi ég nú bara að það kemur sér ágæt­lega fyrir rík­is­sjóð á þessum dögum ef við fáum 40, 50 til 60 millj­arða í lausu fé til að ganga upp í halla­rekstur rík­is­sjóðs og þurfum við þá ekki að taka þá pen­inga að láni inn­an­lands eða erlendis. Þannig að ég tel að það sé ekki nein áhætta í því fólgin og ég sé ekki sterk rök fyrir þessu mikla eign­ar­haldi þar af leið­andi. Ég held að það sé eng­inn flokkur sér­stak­lega með það á stefnu­skrá sinni að ríkið á Íslandi eigi að eiga eig­in­lega allt banka­kerfið eða fjár­mála­kerfið – það held ég ekki,“ segir hann.

Kemur í ljós hvort þetta sé rétti tíminn

Stein­grímur segir jafn­framt að málið snú­ist um það hvort þetta sé rétti tím­inn til að selja eða ekki. „Ég segi að það muni koma í ljós. Það er vænt­an­lega þannig að ef ekki fæst ásætt­an­legt verð þá verði ekki að söl­unni. Menn hafa að sjálf­sögðu ákveðnar við­mið­anir í þeim efnum; að ríkið fái gott verð ef það selur bank­ann eða í honum hlut á annað borð.

Nú held ég að það sé ekki slæmt ef slíkur banki er þá skráður hér og verði í Kauphöll. Þá sætir hann því aðhaldi og því eft­ir­liti og þeirri upp­lýs­inga­skyldu sem í því er fólgin og svo fram­vegis. Þannig að ég sé ýmsa kosti við þetta líka: Að ríkið leysir til sín heil­mikið laust fé sem þarna er bundið og mun þetta ekki hafa áhrif á afkomu rík­is­sjóðs af því að búið er að eign­færa hlut­inn.“

Hann segir að því sé ekki að neita að ríkið þurfi að fjár­magna gríð­ar­legan halla­rekstur á næst­unni og að í því felist ákveðið sjón­ar­mið að það gæti verið ágætt að nota eign sem þessa í slíka fjár­mögnun.

„Það er svo margt líka að breyt­ast í banka­rekstri að ég er ekki viss um að það sé ekki endi­lega for­sjálni af hálfu rík­is­ins að eiga allt of mikið þar. Að leyfa einka­að­il­unum frekar í meira mæli en minna að kljást við það. En ég held að það sé gríð­ar­lega mik­il­vægt í þessu sam­bandi að það liggi fyrir að ríkið muni áfram tryggja þá kjöl­festu sem fólgin er í því að eiga stærsta bank­ann,“ segir hann.

„Svolítið rómantísk og góð hugmynd“

Stein­grímur bendir á að sumir séu með ákveðnar hug­myndir er varða Lands­bank­ann um að setja á ein­hvers konar sam­fé­lags­banka­form eða sjálfs­eigna­stofn­un­ar­form.

„Mér finnst það svo­lítið skemmti­legt, því á manna­máli þýðir það að menn ætla að breyta Lands­bank­anum í spari­sjóð – sem er svo­lítið róm­an­tísk og góð hug­mynd. Ég var nátt­úru­lega mjög mik­ill stuðn­ings­maður spari­sjóð­anna og ég sæi ekk­ert að því. Í raun er beint eign­ar­hald þjóð­ar­innar í gegnum ríkið að mörgu leyti bara gott.

Það þarf bara að finna út úr því hvaða skyldur ríkið getur þá líka lagt á slíkan banka. Það getur alveg gert það í gegnum eign­ar­haldið upp að vissu marki en vissu­lega sem banki í sam­keppn­isum­hverfi þá eru því tak­mörk sett. En segjum bara að ríkið sem eig­andi hafi það skýrt að það vilji að þessi banki tryggi þjón­ustu og sé til staðar, til dæmis á lands­byggð­inni sem er nátt­úru­lega liggur næst Lands­bank­anum. Hann er með langút­breiddasta þjón­ustu­netið og inn í hann gekk mikið af spari­sjóða­kerf­inu. Þannig að ég lít nú svona á hann sem ákveð­inn þjóð­ar­banka í þeim skiln­ingi,“ segir hann.

Gjörólíku saman að jafna

Þegar Stein­grímur er spurður út í það hvort sporin hræði vegna fyrri reynslu af banka­sölu segir hann ákveðið að svo sé ekki. „Nei, það er bara mis­skiln­ingur ef menn leggja þetta á nokkurn hátt að jöfnu við einka­væð­ing­una á sínum tíma. Það eru ósam­bæri­legir hlutir. Hér er verið að selja hlut í banka í allt öðru, gjör­breyttu og miklu miklu betra og örugg­ara lagaum­hverfi.

Síðan erum við með mjög öfl­ugt sam­einað Fjár­mála­eft­ir­lit og Seðla­banka sem ég hef fulla trú á að geti sinnt sínu hlut­verki vel í þeim efnum. Það vorum við ekki með á þeim tíma. Þá vorum við með eig­in­lega bara ónýtt fjár­mála­eft­ir­lit, það var ekki neitt neitt og hafði ekki roð í bank­ana eftir að þeir fóru að stækka. Þetta er algjör­lega gjör­ó­líku saman að jafna.“

Stein­grímur seg­ist þannig ekki vera í þeim hópnum sem hefur áhyggjur. „Mér finnst allt í lagi að láta á þetta reyna hvort fáist ásætt­an­legt verð og á að sjálf­sögðu ekki að selja neitt nema fáist gott verð. Ég úti­loka alls ekki að það ger­ist.“

Væri ekki að tala með þessum hætti ef hann hefði áhyggjur

Varðandi tíma­setn­ingu söl­unnar í COVID-19 far­aldri þá telur Stein­grímur að menn muni ekki að vera svo skamm­sýnir að láta það hafa áhrif. „Menn munu miklu frekar horfa á það hvort hagur hag­kerf­is­ins muni ekki fara að batna og landið fara að rísa, þannig að þetta sé kannski einmitt ágætur tími til að fjár­festa í slíku. Það vantar ef eitt­hvað er álit­lega fjár­fest­inga­kosti á mark­að­inn.“

Hann minn­ist í þessu sam­hengi á útboð Icelandair í haust. „Þar fékkst gríð­ar­lega góð þátt­taka og af hverju skal það ekki verða aftur í Íslands­bank­anum?“ spyr hann.

Stein­grímur end­ur­tekur það að hann hafi ekki áhyggjur af söl­unni. „Ég get von­andi full­vissað menn um það að ég væri ekki að tala svona ef ein­hverjar áhyggjur væru til staðar. Ég ætla sko ekki að fara að leggja blessun mína yfir eitt­hvað þar sem ég hefði áhyggjur af að sagan gæti end­ur­tekið sig.“

Telur hann jafn­framt að þegar upp er staðið hafi einka­væð­ing bank­anna á sínum tíma fengið ræki­lega rann­sókn í skýrslu rann­sókn­ar­nefndar Alþingis og í frek­ari rann­sóknum á afmörk­uðum þáttum. „Ég tel í aðal­at­riðum að þau kurl séu komin til grafar.“

Óeðlilegt ef menn veltu ekki upp spurningum

Stein­grímur seg­ist þó skilja mjög vel að sporin hræði. „Það væri mjög óeðli­legt ef menn veltu ekki upp spurn­ingum og það eiga menn að gera. En þá þurfa menn að geta svarað þeim mjög vel með rökum sem ég tel að mjög auð­velt sé að gera ef menn kynna sér það hversu gjör­breytt umhverfi þetta er. Svo geta menn haft þá skoðun að þessi geiri eigi að uppi­stöðu til að vera í sam­fé­lags­legri eigu. Það er alveg sjón­ar­mið sem ég ber virð­ingu fyrir en þá værum við auð­vitað að skera okkur mjög úr hvað það varðar í lönd­unum í kringum okkur. Það er hvergi á byggðu bóli, alla­vega ekki hér í Evrópu, nein dæmi um svona umfangs­mikið eign­ar­hald rík­is­ins eins og hér er af til­teknum ástæðum.“

Stein­grímur seg­ist að lokum ekki leggja að jöfnu fjár­mála­kerfið og mik­il­væg­ustu inn­viði lands­ins. „Þetta er ekki sam­bæri­legt við hluti eins og Lands­virkjun eða Isavia – hvað þá heldur vel­ferð­ar­þjón­ust­una. Það þarf nú ekki einu sinni að ræða það að það á að halda gróða­öfl­unum þar utan veggjar. Menn eiga ekki að fá að sjúga arð út úr und­ir­stöðu­stofn­unum í vel­ferð­ar­sam­fé­lag­inu. Það er eitt­hvað sem særir í þeim efnum.“

Fréttin er hluti af stærra við­tali sem mun birt­ast síðar á Kjarn­anum við Stein­grím J. Sig­fús­son.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár