Tengja norrænt hugvit við bandaríska peninga

Alþjóðleg ráðstefna um leikja­iðnað og sýndar­veruleika á að leiða saman norræn sprota­fyrirtæki á sviði tölvu­leikja og sýndar­veruleika og fjárfesta frá Banda­ríkjunum og Evrópu. Fjár­festar fá tækifæri til að bóka einka­fundi með sprota­fyrir­tækjunum fyrir viðburðinn og átta fyrirtæki fá tækifæri til að kynna starfsemi sína í svokallaðri Pitch-keppni. Meðal gesta verða áhrifa­miklir fjár­festar, frumkvöðlar og útgefendur á borð við David Gardner (London Venture Partners), Susana Meza Graham (Paradox Interactive), Dean Hall (RocketWerkz og DayZ) og fleiri.

Ráðstefnan, sem heitir Slush Play, fer fram í Gamla Bíó 28. til 29. apríl næst­komandi og er skipulögð af Klak Innovit í samstarfi við lykil­aðila í íslenskum leikja­iðnaði og þá sem standa að Slush-ráðstefnunni í Finnlandi. Ráðstefnan þar er ein stærsta tækni- og sprota­ráðstefna Evrópu og laðar að sér fólk úr ýmsum greinum hvaðanæva að úr heiminum, en hana sóttu um 14.000 manns síðasta haust.

Aðspurð um aðdrag­anda ráðstefnunnar segir Salóme Guðmunds­dóttir, framkvæmda­stjóri Klak Innovit og Slush PLAY, að hugmyndin að ráðstefnunni hérlendis hafi kviknað í lok síðasta árs þegar lykil­gerendur í íslensku leikja­senunni höfðu fengið vilyrði fyrir styrk frá Nordic Game Institute til að halda ráðstefnu um málefni greinarinnar á Íslandi. Hluti þeirra sótti Slush-ráðstefnuna í Helsinki ásamt fulltrúum Klak Innovit. Ráðstefnan þótti fram­úrskarandi og Íslendingarnir fengu hugmynd um að halda ráðstefnu í samstarfi við Slush þar sem hugmyndin féll í ljúfan jarðveg.

Það er gríð­ar­leg þekk­ing sem hefur orðið til vítt og breitt um Norð­ur­löndin á þessu sviði á und­an­förnum árum.

„Leikja­fyrirtæki sem stofnuð hafa verið á Norður­löndunum eru á meðal þeirra stærstu í heiminum. Þar á meðal eru DICE, Supercell, Rovio, King, Paradox, Remedy, CCP og Plain Vanilla. Það er gríðarleg þekking sem hefur orðið til vítt og breitt um Norður­löndin á þessu sviði á undan­förnum árum,“ segir Salóme. „Svo eru auðvitað margir áhuga­verðir hlutir að gerast í sprota­samfélaginu á Íslandi um þessar mundir; Það hefur líklega aldrei verið jafn líflegt og nú. Við erum meðal annars að sjá fleiri og fleiri öflug fyrirtæki á sviði leikja­iðnar og sýndar­veruleika spretta upp og nokkur þeirra fá tækifæri til að kynna starfsemi sína fyrir gestum Slush PLAY nú í lok mánaðar“.

Framtíðar­straumar og -stefnur leikja­iðnaðarins og tengsl hans við sýndar­veruleika verða meginþema ráðstefnunnar en þó sýndar­veruleiki sé oftast settur í samhengi við tölvu­leiki eru fleiri mögu­leikar fólgnir í framþróun tækninnar.

„Sýndar­veruleiki kemur svo sannarlega til með að verða nýttur á fleiri sviðum heldur en í leikja­iðnaði. Leikja­iðnaðurinn er hins vegar góð leið til að kynna tækifæri sýndar­veruleika. Þar reynir til dæmis á tækja­búnaðinn og tæknin nær til þeirra sem eru fyrstir að tileinka sér nýjungar,“ segir Salóme.

Fjöldi gesta ráðstefnunnar stefnir í um 250 manns en ef vel gengur spá skipuleggjendur að sú tala geti marg­faldast innan fárra ára. Enn er hægt að tryggja sér miða á ráðstefnuna en nánari upplýsingar má finna á vefnum og á Facebook-viðburði ráðstefnunnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár