Inga spyr forsætisráðherra: „Ætlarðu að reyna að hjálpa fátæku fólki fyrir jólin?“

Formaður Flokks fólks­ins segir að des­em­ber­upp­bót til öryrkja sé bjarn­ar­greiði sem geri ekk­ert fyrir fátæk­asta fólkið í land­inu. Hún spurði for­sæt­is­ráð­herr­ann á þingi hvort hún ætl­aði að hjálpa fátæku fólki fyrir jólin.

Inga Sæland for­maður Flokks fólks­ins og Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra ræddu kjör öryrkja og elli­líf­eyr­is­þega í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í dag. Þing­mað­ur­inn spurði for­sæt­is­ráð­herr­ann meðal ann­ars hvað hún ætl­aði að gera fyrir fátækt fólk núna fyrir jólin.

Inga sagð­ist í fyr­ir­spurn sinni hafa sem fjög­urra barna móðir og öryrki grátið hér áður fyrr og kviðið jól­unum hvert ein­asta ár – og það í boði sitj­andi rík­is­stjórna hverju sinni. „Heild­ar­end­ur­skoðun á kerf­inu, des­em­ber­upp­bót og tölu­verður halli sem við eigum að vita að er á rík­is­sjóði. Skyldi hafa verið hugsað um þennan halla á rík­is­sjóði þegar hæst­virtur fjár­mála­ráð­herra steig fram fyrir alþjóð í fjöl­miðlum og sagði að kostn­aður við þennan ráð­herrakapal sem nú hefur verið í gangi í boði rík­is­stjórn­ar­innar myndi senni­lega hlaupa á ein­hverjum hund­ruðum millj­óna.“

Hún sagði enn fremur að þing­menn hefðu fengið fleiri hund­ruð pósta, í unn­vörpum, frá ótta­slegnum for­eldrum og van­sælum fjöl­skyldum sem væru að biðja um hjálp.

Beindi Inga sjónum sínum að des­em­ber­upp­bót sem öryrkjar og elli­líf­eyr­is­þegar fengu nú í des­em­ber. „Þegar búið er að leggja inn ríf­lega 30.000 krónur á banka­bók­ina hjá öryrkj­anum og elli­líf­eyr­is­þeg­anum, sem fær ekk­ert annað en ber­strípaðar almanna­trygg­ingar, þá verður ekk­ert eftir. Þetta skerðir allt saman; heim­il­is­upp­bót­ina, húsa­leigu­bæt­urnar, skerðir allt saman. Eftir er 0. Er þetta des­em­ber­upp­bót sem ein­hver getur verið stoltur af? Svarið er nei. Þetta er bjarn­ar­greiði sem gerir ekk­ert fyrir fátæk­asta fólkið í land­inu,“ sagði hún.

Spurði Inga Katrínu hvort hún hefði fengið þetta ákall sam­fé­lags­ins um það að fá „smá jóla­bónus, skatta- og skerð­ing­ar­lausan, sem raun­veru­lega nýt­ist fjöl­skyld­unum, sem getur raun­veru­lega sett mat á diskinn, sem lætur raun­veru­lega börnin okkar ekki fara í jóla­kött­inn? Er furða að ég spyrji?

Það hefur ekk­ert að segja fyrir öryrkja og aldr­aða sem eiga ekki fyrir salti í graut­inn þó að það eigi að stokka upp þetta hand­ó­nýta Trygg­inga­stofn­un­ar­kerfi sem löngu er orðið tíma­bært. Það hefur ekk­ert að segja. Ætlarðu að reyna að hjálpa fátæku fólki fyrir jólin með því að gefa þeim skatt­frjálsa jóla­upp­bót?“ spurði Inga Katrínu.

Finnst mikilvægt að endurskoða kerfið

Katrín svar­aði og þakk­aði Ingu fyrir fyr­ir­spurn­ina. „Hún end­ur­speglar nákvæm­lega það sem ég hef verið að segja. Hér kemur hátt­virtur þing­maður upp og talar um skerð­ingar í kerf­inu og það er nákvæm­lega það sem ég hef verið að tala um hér, að við erum með kerfi þar sem hver við­bót­ar­hækkun skerðir ýmist aðra bóta­flokka eða aðrar tekjur.“

Hún spurði Ingu hvort hún væri sam­mála henni um að end­ur­skoða ætti þetta kerfi sem hún tal­aði um í „ein­hverjum háð­ung­ar­tón“.

„Finnst hátt­virtum þing­manni það ekki mik­il­vægt þegar hún stendur hér einmitt og talar um nákvæm­lega það sem er að í kerf­inu, sem eru þessar inn­byrð­is­skerð­ingar? Það er auð­vitað nokkuð sem við þurfum að ráð­ast í og hefur verið nákvæm­lega það sem hefur verið for­gangs­at­riði með því sem var gert á síð­asta kjör­tíma­bili, bæði gagn­vart skerð­ingum í atvinnu­tekjum og inn­byrð­is­skerð­ingum bóta­flokka.“

Katrín benti á að fyrr­nefnd des­em­ber­upp­bót­ina næmi 64.000 krónum fyrir öryrkja sem búa einir en tæki einmitt skerð­ingu vegna þess að kerfið væri þannig upp­byggt.

„Ég ætla ekki að hika við að segja: Já, mér finnst mik­il­vægt að end­ur­skoða þetta kerfi. Það kann vel að vera að hátt­virtur þing­maður sé ósam­mála mér og þá er það bara þannig.“

„Það er algjörlega verið að leggja mér orð í munn“

Inga kom aftur í pontu og sagð­ist þakka for­sæt­is­ráð­herra fyrir „akkúrat ekk­ert svar“ enda hefði hún ekki búist við miklu. „Ég spurði ein­fald­lega hvort hjálpa ætti þessu fólki núna fyrir jólin. Og það er algjör­lega verið að leggja mér orð í munn þegar ég tala hér um haldó­nýtt trygg­inga­stofn­un­ar­kerfi ef hæst­virtur for­sæt­is­ráð­herra hefur tekið það þannig inn að mér finn­ist vera allt í lagi með kerfið í heild sinni. Það er alls ekki svo. Ég er ekki að tala um þetta eina pró­sent, þennan aum­ingja­skap sem á að klína á þau sem geri enn gleið­ara kjara­bil núna eftir ára­mót, ég er ekki að tala um það.“

Hún sagð­ist vera að tala um jólin núna. „Ég er að tala um þann tíma. Eftir 12 daga: Aðfanga­dag. Ég er að tala um hvort að fátækt fólk og öryrkjar geti keypt sér eitt­hvað annað en að halda áfram að elda hafra­graut og vera með hrís­grjóna­graut í mat­inn. Ég er að tala um hvort hægt sé að stíga niður á jörð­ina til þeirra hinna sem hafa það bágt og aðeins líta út fyrir eigin vel­ferð og eigin vel­sæld og eigið pen­inga­veski og koma til móts við fólkið okkar sem er að biðja um hjálp núna.“

Spurði hún í fram­hald­inu hvað Katrín ætl­aði að gera núna í þessum málum en ekki eftir ára­mót.

Mikil þörf á því að skapa þverpólitíska samstöðu

Katrín sagð­ist í kjöl­farið fagna því að Inga vildi end­ur­skoða kerfið því að mikil þörf væri á því að reyna einmitt að skapa þverpóli­tíska sam­stöðu um málið.

„Eins og fram kom í máli mínu áðan end­ur­spegl­ast skýr vilji rík­is­stjórn­ar­innar til þess að horfa sér­stak­lega til þessa hóps í því fjár­laga­frum­varpi sem hér er til með­ferðar,“ sagði hún og bætti því við að fjár­laga­nefnd væri með frum­varpið til skoð­unar og gæti tekið afstöðu til frek­ari úrbóta á því sviði í þing­legri með­ferð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár