„Hefst nú sami söngurinn um að endurskoða kerfið“

Formaður Sam­fylk­ing­ar­innar segir að það sé ómann­eskju­legt að láta öryrkja bíða árum saman eftir end­ur­skoðun kerf­is­ins. For­sæt­is­ráð­herra segir að mik­il­væg­asta verk­efnið sem Alþingi stendur frammi fyrir sé að ná „sam­stöðu um miklu rétt­lát­ara kerfi“.

Logi Einarsson formaður Samfylkingarinnar.
Logi Ein­ars­son for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Mynd: Bára Huld Beck

Logi Ein­ars­son for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar og Katrín Jak­obs­dóttir for­maður VG og for­sæt­is­ráð­herra ræddu mál­efni öryrkja í fyrsta óund­ir­búna fyr­ir­spurna­tíma nýs þings á Alþingi í gær.

Logi hóf mál sitt á því að vitna í stefnu­ræðu for­sæt­is­ráð­herra þar sem hún tal­aði um að bæta þyrfti kjör öryrkja. „Við lestur fjár­laga­frum­varps­ins sést þó að það eina hand­fasta sem rík­is­stjórnin hyggst gera er að hækka grunn­bætur öryrkja um 1 pró­sent umfram árlega og lög­bundna hækkun upp á 4,6 pró­sent. Á sama tíma hefur launa­vísi­talan hækkað um 7,6 pró­sent á árinu. Sé auk þess tekið til­lit til verð­bólgu batna kjörin sem sagt ekk­ert og eng­inn raun­veru­legur vilji birt­ist hjá rík­is­stjórn­inni til að jafna þennan órétt,“ sagði hann.

Telur Logi að það sé erfitt að sjá að rík­is­stjórnin hafi ein­hverja afsökun í mál­inu. „Afkoma rík­is­sjóðs varð 120 millj­örðum betri á þessu ári en ótt­ast var en í fjár­laga­frum­varp­inu sést að aðeins 1,3 millj­arðar eru veittir til almenn­ings auka­lega umfram það lög­bundna þrátt fyrir þennan afkomu­bata.“

Hann spurði því Katrínu hvort hún væri sam­mála honum um það að þessi aukn­ing gerði lítið til að bæta kjör þess­ara tekju­lágu hópa og gerði ekk­ert til að draga úr tekjugliðn­un­inni.

Fyrsta skrefið af mörgum

Katrín svar­aði og benti á að þó að afkoma rík­is­sjóðs væri betri þá gerðu áætl­anir engu að síður ráð fyrir tæp­lega 170 millj­arða króna halla á rekstri rík­is­ins á þessu ári.

„Þessi stað­reynd hefði ein­hvern tím­ann þótt slá­andi, en vegna þess að við höfum tekið þá ákvörðun að við ætlum að vaxa út úr þess­ari kreppu, að við nálg­umst hana af ákveðnu æðru­leysi, þá sjáum við um leið ekki veru­lega aukn­ingu á útgjöldum í þessum fjár­lögum vegna þess að við erum að gefa okkur tíma til að vaxa út úr krepp­unni til auk­innar vel­sældar.“

Hvað varðar örorku- og end­ur­hæf­ing­ar­líf­eyr­is­þega þá sagði Katrín að það væri rétt sem Logi benti á að greiðslur til þeirra tækju sér­stakri pró­sentsvið­bót­ar­hækkun umfram 4,6 pró­sent, sem væri þá við­bót­ar­hækkun upp á 800 millj­arða króna. „Á síð­asta kjör­tíma­bili, þó að við ætlum ekki að dvelja við það, vörðum við 4 millj­örðum króna í að bæta kjör örorku­líf­eyr­is­þega og þeim var fyrst og fremst varið í það verk­efni að draga úr skerð­ingum sem hefur verið eðli­legt bar­áttu­mál tals­manna þessa hóps.“

Hún sagði að þetta væri ein­ungis fyrsta skrefið af mörgum en mik­il­væg­asta verk­efnið þegar kemur að örorku- og end­ur­hæf­ing­ar­líf­eyr­is­þegum væri að end­ur­skoða kerfið.

„Því var ekki lokið á síð­asta kjör­tíma­bili. Því verk­efni verðum við að ljúka á þessu kjör­tíma­bili til að gera þetta kerfi rétt­lát­ara og gagn­særra og tryggja afkomu ekki síst þeirra sem höllustum fæti standa, en fram­kalla líka rétta hvata til auk­innar virkni og þátt­töku þeirra sem það geta. Þetta er verk­efnið sem við stöndum frammi fyrir. Ég treysti á það að nýr félags­mála- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra muni eiga gott sam­ráð við Alþingi um þetta verk­efni því að við erum búin að ræða þetta í ótelj­andi skipti hér í þing­sal. Ég er alveg viss um að við getum náð sam­stöðu um þetta mik­il­væga verk­efni,“ sagði hún.

Fólk borðar ekki samráð eða býr í því

Logi steig aftur í pontu og sagði: „Hefst nú sami söng­ur­inn um að end­ur­skoða kerfið. Auðvitað er það nauð­syn­legt en það er býsna ómann­eskju­legt að láta fólk bíða árum saman eftir þess­ari end­ur­skoðun, fólkið borðar ekki þetta sam­ráð og býr ekki heldur í því.“

Hann sagð­ist jafn­framt ekki hafa haldið því fram að staðan á rík­is­sjóði væri góð. „Ég er miklu frekar að spyrja: Er hún nógu slæm til að skilja þessa hópa enn og aftur eftir? Þess vegna hlýt ég bara að end­ur­taka spurn­ing­una til hæst­virts for­sæt­is­ráð­herra: Er hún sam­mála mér um að þessi aukn­ing geri lítið sem ekk­ert til að bæta kjörin og er hún sam­mála mér um að kjaragliðnun muni halda áfram? Já eða nei,“ spurði hann.

Hefur trú á að Alþingi takist að ná samstöðu um réttlátt kerfi

Katrín sagði í kjöl­farið að verið væri að leggja aukna fjár­muni til þess verk­efnis að bæta kjör örorku- og end­ur­hæf­ing­ar­líf­eyr­is­þega.

„Eins og kom skýrt fram í fyrra svari mínu er það ein­ungis fyrsta skrefið af fleirum og eins og kom skýrt fram: Já, sami söngur en það er vegna þess að verk­efnið hefur ekk­ert farið frá okkur og við megum ekki gef­ast upp á því verk­efni að gera þetta kerfi betra. Við sem höfum tekið þátt í því að sam­þykkja aukna fjár­muni til að bæta kjör örorku­líf­eyr­is­þega sjáum líka að kerfið er hlaðið inn­byrðis skerð­ingum sem gerir það að verkum að okkur reyn­ist erfitt að tryggja að stuðn­ing­ur­inn nýt­ist þar sem hann á best heima.

Það er stórt verk­efni og ég ætla ekki að falla frá því að eitt mik­il­væg­asta verk­efnið sem Alþingi stendur frammi fyrir er að ná sam­stöðu um miklu rétt­lát­ara kerfi. Ég er þess full­viss að við getum það ef við virki­lega leggjum okkur fram um að skapa sam­stöðu um það,“ sagði hún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár