Amazon, Netflix, Facebook og Alphabet hrynja í verði

Félögin sem hækkuð mest af öllum í fyrra í Banda­ríkjunum hafa lækkað meira en vísitala markaðarins á þessu ári.

Netrisarnir Amazon, Netflix, Facebook og Alphabet (Google) hafa öll lækkað meira heldur en samræmd vísitala markaðarins í Banda­ríkjunum, S&P 500, það sem af er ári. Þessi félög hækkuðu mestra allra félaga í fyrra, og virtust fjár­festar treysta á að þau myndu vaxa hratt og skila góðri ávöxtun.

Byrjun þessa árs hefur verið erfið fyrir hlutabréfa­markaði um nær allan heim, og sé dagurinn í dag meðtalinn þá hefur um 5 prósent af öllu verði skráðra félaga í heiminum horfið það sem af er ári, miðað við stöðuna eins og hún var í lok árs í fyrra.

Mesta lækkunin á árinu á Bandaríkja­markaði, stærsta skráða hlutabréfa­markaði í heiminum, er hjá Amazon, eða um fimmtán prósent. Netflix hefur lækkað um 9,7 prónsent, Facebook um 9,2 prósent og Alphabet, oftast þekkt undir nafni Google, um 8,9 prósent, samkvæmt umfjöllun Wall Street Journal.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár