Á þriðja hundrað flóttamenn drukknuðu í Miðjarðarhafi

Talið er að 4.220 flótta­menn hafi drukknað í Mið­jarð­ar­hafi það sem af er ári.

Óttast er að um 240 flótta­menn hafi drukknað í tveimur sjó­slysum undan strönd Líbíu. Slysin urðu þegar tveimur yfir­fullum bátum hvolfdi á leið sinni til Evrópu. Öðrum bátnum hvoldi um 20 mílum frá Líbíu en hinum undan strönd ítölsku eyj­unnar Lampedusa um sól­ar­hring fyrr. Tveimur konum var bjargað úr sjónum og upp­lýstu þær björg­un­ar­sveitir ítölsku land­helg­is­gæsl­unnar um það sem hafði gerst.

Carlotta Sami, tals­kona Flótta­manna­hjálpar Sam­ein­uðu þjóð­anna, segir í við­tali við New York Times, að um 30 eft­ir­lif­endum úr slys­inu við Lampedusa hafi verið bjargað. Þar af voru sex börn og 20 konur, sumar barns­haf­andi. Um 29 flótta­mönnum var bjargað vegna báts­ins sem hvolfdi undan strönd Líbíu og fund­ust tólf lík á staðnum, að sögn Sami.

Nú er talið að 4.220 hafi drukknað á þess­ari leið það sem af er ári, og ekk­ert lát virð­ist á straumi flótta­manna yfir hafið í leit að betra lífi. Flestir flótta­manna koma frá Sýrlandi, Írak, Líbíu og Afganistan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár